Formúla 1

Alonso kveður Renault

Fernando Alonso
Fernando Alonso NordicPhotos/GettyImages

Heimsmeistarinn Fernando Alonso fór í kveðjutúr um verksmiðjur Renault á Englandi um helgina en hann gengur til liðs við McClaren fyrir næsta tímabil. Alonso kvaddi starfsmenn Renault með þökkum og óskaði þeim sigurs í öllum keppnum sem hann á annað borð sigraði ekki í sjálfur.

"Ég vil þakka ykkur fyrir vélarnar í fyrra og í ár, vélarnar sem gerðu okkur kleift að vinna titil bílasmiða. Ég vona að ykkur gangi vel í framtíðinni og að ef ég vinn ekki - að það verði þá bíll frá ykkur sem kemur fyrstur í mark. Þið eruð bestir," sagði Alonso við starfsmenn Renault í bílaverksmiðju framleiðandans í Oxford á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×