Fastir pennar

Þorir meðan aðrir þegja

Ég get ekki séð mikið óeðlilegt við að Ekstrablaðið danska fjalli um íslenska kapítalista. Má vera að þetta sé ekkert ofboðslega vandað - en þetta er jú blaðið sem bjó til slagorðið Þorir meðan aðrir þegja. Frekar að þetta afhjúpi ódöngun íslenskra fjölmiðla sem hafa mestanpart látið eiga sig að fjalla um nýja auðvaldið á gagnrýninn hátt. Til dæmis fannst mér ansi forvitnilegt að sjá hringrás fjármagnsins milli Íslands, Danmerkur, Lúxemborgar og Karíbahafsins. Kannski er ekkert ólöglegt við þetta, en það er ekkert tiltakanlega siðlegt heldur.

Nú hefur Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, sem býr í Danmörku, kært Ekstrablaðið fyrir þessa umfjöllun. Allt út af einhverjum stíltilþrifum í texta dönsku blaðamannanna. Vilhjálmur hefur áður gengið fram fyrir skjöldu með furðulegum hætti, til dæmis þegar hann hélt því fram fullum fetum í grein sem birtist í Jerúsalem að gyðingahatur væri vaxandi á Íslandi.

Þetta fann Vihjálmur út með því að leggja andstöðu við framferði Ísraelsmanna í Palestínu að jöfnu við hatur á gyðingum. Sagði hann að í landi þar sem búa svo fáir gyðingar sé viðhorfið til Ísraels líklega besta aðferðin til að "mæla antí-semitisma."

Annars kemur Árni Mathiesen einna verst út úr þessu. Það er náttúrlega rétt hjá ritstjóra Ekstrabladet að það var fáránlegt af íslenska fjármálaráðherranum að tjá sig um greinarflokkinn áður en birting hans hófst.

--- --- ---

Skrítið af Ingibjörgu Sólrúnu að taka það fram sérstaklega að hún sé ekki ánægð vegna lélegs gengis Önnu Kristínar Gunnarsdóttir í prófkjöri Samfylkingar á Norðvesturlandi. Þykir Sólrúnu þá vont að fá Kalla Valla prest aftur á þing? Eftir fjögur ár á þingi fékk Anna Kristín fékk ekki nema 368 atkvæði í efstu sætin. Það ber ekki vott um miklar vinsældir. Hún hefur verið ein af ósýnilegu þingmönnunum sem Pétur Gunnarsson lýsir eftir í pistli.

Eitt sinn sátu miklir höfðingjar úr vestursýslum Norðurlands á þingi. Páll Pétursson, Björn Pálsson, Jón Pálmason, Pálmi Jónsson - en nú stefnir í að Húnvetningar og Skagfirðingar eigi engan þingmann. Þetta hefur verið nokkuð erfitt hjá þeim um nokkurt skeið. Til skamms tíma sat Vilhjálmur Egilsson á þingi fyrir kjördæmið, bjó í Reykjavík - en var eiginlega réttnefndur frjálshyggjumaður í bændagíslingu.

--- --- ---

Úbbs. Halldór Ásgrímsson að verða framkvæmdastjóri ráðherranefndarinnar norrænu og á sama tíma leggur Dagens Nyheter, virtasta blað Norðurlandanna, til að Norðurlandaráð verði lagt niður. Ef þetta er ekki aðför þá veit ég ekki hvað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×