Erlend lán í heimabönkum 20. október 2006 11:47
Viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingabankans hefur frá síðustu mánaðamótum staðið til boða að greiða af erlendum lánum í gegnum heimabanka eða með greiðsluseðlum, sem eru sendir heim. Fram til þessa hefur einungis verið hægt að greiða af erlendum lánum með millifærslum inn á reikning bankans í kjölfar bréflegrar tilkynningar um að komið sé að gjalddaga. Í tilkynningu frá bankanum segir Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingabankans, að viðskiptavinir bankans geti sparað sér umtalsverðar upphæðir með því að setja erlend lán hjá bankanum í beingreiðslur í sínum viðskiptabanka eða sparisjóði. Þannig lækki innheimtugjald fyrir hvern gjalddaga í 160 krónur. Þannig sparist rúmlega 8.000 krónur á ári. Þá hefur Frjálsi fjárfestingabankinn lágmarkað aukakostnað sem oft fylgir lánveitingum. Til dæmis sé ekkert gjald tekið fyrir umsjón með þinglýsingu eða fyrir uppgjör og afléttingu lána frá öðrum lánastofnunum. Ekkert afgreiðslugjald er tekið fyrir þessa umsýslu. Þá setur bankinn engin skilyrði um önnur bankaviðskipti, að því er fram kemur í tilkynningunni. Í tilkynningunni segir ennfremur að erlend lán séu í eðli sínu óverðtryggð. Hins vegar geti myntirnar sem lánið er tekið í tekið breytingum í samræmi við sveiflur gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni. Lánin eru uppgreiðanleg án gjalds á lánstíma ef lántaki sýnist svo að gengisþróun verði honum óhagstæð. Kristinn segir þá sem taki lán sem þessi meðvitaða um gengisáhættuna og sveiflur krónunnar. Til lengri tíma litið skipti sveiflurnar minna máli. „Vaxtakostnaður á erlendum lánum er í dag lágur í samanburði við vexti á íslensku krónunni og síðan má velja sér myntkörfur sem hafa sýnt sig að vera nokkuð stöðugar til lengri tíma litið," segir Kristinn í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira