Skógræktarfélagið ekki markaðshindrandi 5. apríl 2006 10:14
Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að þrátt fyrir að viss mismunum felist í starfi Skógræktarfélags Íslands þá sé það ekki markaðshindrun þegar nýir aðilar vilja starfa við grisjun sumarhúsalóða og skipulagsvinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Starfi félagið ekki á samkeppnismarkaði og vinni það eingöngu að grisjun eða ráðgjöf vegna skógarreita aðildarfélaga Skógræktarfélagsins. Samkeppnisstofnun barst erindi frá Boga Franzsyni skógverkfræðingi vegna málsins í maí árið 2002. Taldi hann sig eiga litla möguleika á að skapa sér atvinnu vegna þess að landbúnaðarráðuneytið styrki Skógræktarfélag Íslands og missi hann viðskipti vegna þessa. Benti hann á í erindinu að til þess að hljóta styrk til skógræktar verði þeir aðilar sem sæki um styrkinn að ganga til samstarfs við landshlutabundin skógræktarverkefni. Geti hann ekki tekið að sér verkefni við landsbundin skógræktarverkefni þar sem lög kveði á um að þátttakendur í verkefnum eigi forgang til allra verka. Þá fái landseigendur nær allan kostnað greiddan úr skógræktarverkefnum og hvetji það þá til að ganga inn í verkefnin sem aftur leiði til þess að þeir eigi ekki viðskipti við Boga. Er niðurstaða Samkeppniseftirlits sú að ekkert hafi komið fram sem bendi til að starfsemi Skógræktarfélags Íslands samrýmist ekki 14. grein samkeppnislaga eða öðrum ákvæðum þeirra þrátt fyrir þennan mismun. Sé því ekki tilefni til aðgerða á grundvelli samkeppnislaga vegna þeirra.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Sjá meira