Lögreglumenn frá Borgarnesi og Búðardal ásamt björgunarsveitum leituðu að tveimur rjúpnaskyttum við Bröttubrekku á sunnudagsvköld.
Mennirnir, sem höfðu orðið viðskila, komu í leitirnar á svipuðum tíma að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Annar þeirra fannst um níuleytið og hafði hinn þá komist sjálfur á bóndabæ. Voru mennirnir kaldir en heilir á húfi.