Til móts við nýja tíma Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar 31. desember 2006 06:00 Árið 2007 ber með sér vonir og væntingar um nýja tíma. Það liggur í loftinu að nú sé kominn tími til að breyta. Þessi áramót marka upphaf kosningaárs og síðasta kjörtímabil ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er senn á enda. Sú stjórn hefur lokið hlutverki sínu. Eftir kosningarnar í vor er tækifæri til að mynda nýja ríkisstjórn. Ég er sannfærð um að flestir vilja frjálslynda jafnaðarstjórn. Hún verður ekki til án Samfylkingarinnar. Þjóðin á betra skiliðAlvarleg mistök og röng forgangsröðun hafa einkennt þetta kjörtímabil. Siðferðisbrestur stjórnvalda í Íraksmálinu er óuppgerður, gömul hleranamál fást ekki upplýst, varnarviðræðurnar voru klúður frá upphafi til enda, valdi hefur verið misbeitt, hagstjórn setið á hakanum, átök við lífeyrisþega hafa verið árviss atburður, skattbyrði hefur þyngst hjá þorra fólks og misskipting auðs og tekna hefur aukist meira en í flestum öðrum löndum. Hagstjórnarmistök hafa valdið miklum sveiflum í efnahagslífinu og flóttinn frá krónunni hefur sett svip sinn á nýliðið ár. Allir sem einhvers mega sín s.s. stórfyrirtæki og efnamenn taka sín lán í evrum eða öðrum erlendum myntum á hóflegum vöxtum. Eftir situr íslenskur almenningur með krónulán – ýmist vísitölutryggð eða á okurvöxtum. Höfuðstóll húsnæðislána hækkar ár frá ári vegna verðbólgunnar þó stöðugt sé greitt af lánunum. Þessi kostnaður vegna hagstjórnarmistaka mun fylgja húsnæðiskaupendum inn í framtíðina. Einstaklingar og smáfyrirtæki sem ná ekki endum saman um mánaðarmót greiða þó hæsta reikninginn. Í nóvember sl. námu yfirdráttarlán til fyrirtækja um 112 milljörðum og til heimila 70 milljörðum. Af þessum lánum eru nú greiddir 21-23% okurvextir sem þýðir að vaxtabyrði fyrirtækjanna er um 24 milljarðar og heimilanna um 14 milljarðar. Ég fullyrði að það er engin betri kjarabót til fyrir íslenskan almenning en að losna undan verðtryggingu og því vaxtaokri sem fylgir íslensku krónunni. Raunvextir á evrusvæðinu eru 1.2-2.2%. Lægra skatthlutfall í tekjuskatti og virðisaukaskatti er hjóm eitt í þeim samanburði. Þeir sem hafna allri umræðu um aðild að Evrópusambandinu verða að svara því af hverju íslenskur almenningur á að greiða fórnarkostnaðinn af því að halda hér uppi sjálfstæðri mynt. Erindi nýrrar ríkisstjórnarMikil verkefni bíða nýrrar ríkisstjórnar á sviði velferðarmála. Mikilvægast er að leysa vanda allra þeirra öldruðu hjúkrunarsjúklinga sem fá enga úrlausn eða þurfa að deila herbergi með öðrum á hjúkrunarheimilum. Þetta er vanvirðing við þá kynslóð sem byggði upp íslenskt velferðarsamfélag. Verkefnið þolir enga bið. Hnattvæðingin hefur birst okkur Íslendingum með afgerandi hætti. Annars vegar með mikilli útrás íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði og hins vegar með verulegri fjölgun erlendra ríkisborgara á íslenskum vinnumarkaði. Hvort tveggja hefur stuðlað að verðmætasköpun og bætt lífskjör Íslendinga. Hnattvæðingin er staðreynd og felur í sér ótal tækifæri fyrir íslenska þjóð ef við tökum skynsamlega á málum. Hún gerir hins vegar kröfur til þess að við fjárfestum umtalsvert í grunngerð samfélagsins – ekki síst samgöngum og menntun – og komum á því jafnvægi í atvinnu- og efnahagsmálum sem getur rennt stoðum undir atvinnulíf framtíðarinnar, hátækni og aðrar þekkingargreinar. Félagsleg undirboð á vinnumarkaði og þ.a.l. lakari lífskjör geta fylgt auknu aðstreymi vinnuafls en raunhæfasta leiðin til að takast á við það er að tryggja innflytjendum og innfæddum sömu réttindi á vinnumarkaði og sömu laun fyrir sömu vinnu. Íslenskt samfélag er ekki komið inn í 21. öldina í samgöngumálum. Þrátt fyrir stóraukna umferð á vegum landsins og 40% hækkun skatttekna ríkissjóðs af ökutækjum landsmanna hafa framlög til vegamála dregist saman um fjórðung á kjörtímabilinu. Mörg svæði á landsbyggðinni búa við skerta grunnþjónustu vegna skorts á samgöngum og öryggi á vegum úti er verulega ábótavant. Ný ríkisstjórn þarf að hefja stórsókn í vegamálum, svo jafna megi aðstöðu landsmanna óháð búsetu. Vel menntað fólk er mikilvægasta auðlind hverrar þjóðar. Ísland á að vera í fremstu röð og verður þ.a.l. að fjárfesta skynsamlega í menntun til að mæta þörfum nýrra tíma. Samfylkingin hefur sett fram tillögur í menntamálum sem byggjast á þeirri grundvallarhugsun að allir geti lært og eigi að fá tækifæri til þess. Tillögurnar fela í sér átak gegn brottfalli, nýtt tækifæri fyrir fólk með litla formlega menntun, aukið frelsi í rekstri og námsframboði framhaldsskólanna, öflugra háskólastig og markvissan stuðning við rannsóknar- og þróunarstarf. Síðast en ekki síst þarf þjóðin ríkisstjórn sem getur stuðlað að breiðri sátt um náttúruvernd og orkunýtingu. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa dregið taum stóriðju allan síðasta áratug og þeim er einfaldlega ekki treystandi til að skapa sátt milli andstæðra sjónarmiða í þessu mikilvæga hagsmunamáli okkar og komandi kynslóða. Samfylkingin tókst á við þetta erfiða verkefni og er eini flokkurinn sem hefur sett fram raunhæfar tillögur til sátta. Sú skýra stefna sem birtist í Fagra Íslandi er vegvísirinn sem við þurfum. Þar er lagt til að lokið verði gerð rammaáætlunar um náttúruvernd sem myndi tryggja að í fyrsta sinn lægju fyrir lykilupplýsingar um verðmæt náttúrusvæði í landinu, svo forða megi því að teknar séu ákvarðanir um að fórna fágætum náttúruperlum á grundvelli vanþekkingar. Breytingar í vorSamfylkingin gengur bjartsýn til kosninga í vor vegna þess að hún hefur unnið heimavinnuna sína. Við höfum lausnir á þeim vandamálum sem blasa við. Við höfum skýra framtíðarsýn fyrir íslenskt samfélag með hugsjónir jafnaðarstefnunnar um frelsi, jafnrétti og samábyrgð að leiðarljósi. Við erum tilbúin að leiða nýja ríkisstjórn sem tekst á við krefjandi verkefni af ábyrgð og stjórnfestu Við skynjum að kjósendur kalla á breytingar og nýjar lausnir. Við erum tilbúin! Ég óska landsmönnum öllum árs og friðar, þakka samfylgdina á liðnu ári og hlakka til samstarfsins á því ári sem nú fer í hönd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Mest lesið „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun