Ná þarf tökum á launamálum 29. nóvember 2006 06:45 Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir samtökin hafa viljað sjá áætlanir um meiri afgang á fjárlögum næsta árs. Hann segir ríkið þurfa að taka á launamálum og tekur Landspítalann sem dæmi.
Áhætta eykst í hagstjórninni nái tillögur meirihluta fjárlaganefndar um aukin útgjöld ríkisins á næsta ári fram að ganga, að sögn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. „Hallinn á ríkissjóði hefur áhrif á heildareftirspurn í þjóðfélaginu. Ef hún er meiri en heildarframleiðslugeta hagkerfisins, líkt og reyndar hefur verið, þá er erfiðara að ráða við verðbólguna,“ segir hann og segir að Samtök atvinnulífsins hefðu viljað sjá meiri afgang á fjárlögum. „Hins vegar höfum við ekkert á móti mörgu því sem verið er að gera. Heildarmyndin lítur hins vegar ekki jafnvel út og hún gerði þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram,“ segir hann, en kveður helst stinga í augu hækkanir tengdar bæði heilbrigðis- og menntamálum. „Máli skiptir að standa við ákvarðanir sem búið er að taka og að menn taki ekki allt aðrar ákvarðanir um útgjöld eftir að fjárlög hafa verið samþykkt, líkt og greinilega var gert á Landspítalanum,“ segir hann og bætir við að svo virðist sem þar hafi verið einhliða teknar ákvarðanir um launahækkanir án nokkurs samræmis við það sem lagt hafi verið upp með. „Í raun er alveg með ólíkindum að aldrei nokkurn tímann skuli nást nein stjórn á fjármálum þeirrar stofnunar.“ Vilhjálmur bendir á að laun séu um 60 prósent af útgjöldum ríkisins og því skipti máli að þau fari ekki úr böndum.
Birtist í Fréttablaðinu Héðan og þaðan Viðskipti Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Sjá meira