Formúla 1

Fernando Alonso og Renault meistarar

alonso og schumacher Fernando Alonso tryggði sér heimsmeistaratitilinn en hann er hér við hlið Michaels Schumachers sem tók í gær þátt í sínum síðasta kappakstri á ferlinum.
alonso og schumacher Fernando Alonso tryggði sér heimsmeistaratitilinn en hann er hér við hlið Michaels Schumachers sem tók í gær þátt í sínum síðasta kappakstri á ferlinum. MYND/nordicphotos/getty images

Þetta hefur verið frábær helgi. Ég vissi það að ég þyrfti bara eitt stig til að vinna meistaratitilinn en markmiðið var líka að tryggja okkur sigur í keppni bílasmiða. Það tókst og tilfinningin er bara frábær, sagði Fernando Alonso, ökumaður Renault, sem tryggði sér í gær heimsmeistaratitil ökuþóra í Formúlu-1 þegar hann varð annar í kappakstrinum í Brasilíu. Það var heimamaðurinn Felipe Massa hjá Ferrari sem kom fyrstur í mark í kappakstrinum í gær.

Þetta var síðasta keppni Michael Schumacher í Formúlu-1 en hann ætlar nú að fara að snúa sér að fjölskyldulífinu. Fyrir síðustu keppnina átti hann smá möguleika á heimsmeistaratitlinum en þá hefði hann þurft að sigra og treysta á að Alonso fengi ekki stig. Það hefur verið frábært að fá að keppa við Michael og ég vil nota tækifærið og óska honum alls hins besta í framtíðinni. Það gerir titla mína verðmætari að hafa unnið þá meðan hann var enn á brautinni, sagði Alonso sem vann heimsmeistaratitilinn einnig í fyrra.

Schumacher endaði í fjórða sæti kappakstursins í gær en dekk sprakk á bíl hans snemma keppninnar. Í heildarstigakeppninni endaði Alonso með þrettán stigum meira en Schumacher en 41 stigi þar á eftir kom Massa. Renault vann nauman sigur í keppni bílasmiða, með fimm stigum meira en Ferrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×