Kjalar ehf. og Ker hf. sameinuð 13. september 2006 00:01 Hjörleifur er nýráðinn forstjóri sameinaðs félags Kers og Kjalar sem kemur til með að starfa undir nafni Kjalar.
Unnið er að sameiningu Kers hf. og Kjalars ehf. hf. í eitt fjárfestingarfélag. Í tilkynningu kemur fram að við breytinguna verði Egla hf. dótturfélag í 100 prósenta eigu hins sameinaða félags. Markmiðið er að efla og hnitmiða starfsemina með áherslu á frekari uppbyggingu utan Íslands en þegar hafa verið stofnuð dótturfyrirtæki í Hollandi og Englandi. Gert er ráð fyrir að hið sameinaða félag taki til starfa í næsta mánuði undir nafni Kjalars. Eignir hins sameinaða félags eru 90 milljarðar króna og eru þær helstu eignarhlutur í Kaupþingi banka hf., í Alfesca hf., í Samskipum hf., í fasteignafélaginu Festingu ehf. og ýmsum öðrum félögum, segir þar jafnframt. Hjörleifur Jakobsson hefur verið ráðinn forstjóri Kers hf. og verður forstjóri hins sameinaða félags. Hann var áður forstjóri Olíufélagsins ehf. en lét þar af störfum 1. mars síðast liðinn. Hjörleifur lauk verkfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1981 og meistaraprófi í vélaverkfræði frá Oklahoma State University 1982. Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers hf. hefur ákveðið að láta af störfum og hverfa til nýrra verkefna. Hann hefur verið forstjóri félagsins frá árinu 2003 og veitti því forystu á miklum uppgangstímum. Guðmundi eru þökkuð vel unnin störf fyrir félagið og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi, segir í tilkynningu um sameininguna.
Viðskipti Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira