Leikjavísir

Mobile connect á Íslandi

Á heimasíðu Ogvodafone er greint frá nýrri og spennandi  þjónustuleið fyrirtækisins í fjarskiptum. Vodafone kynnir nú Mobile Connect þjónustu sína á Íslandi  núna í September og hleypir svo af stað í beinu framhaldi Blackberry þjónustu í október sem farið hefur sigurför um heiminn. Nú þegar eru 3,5 milljónir notanda að Blackberry og eykst sú tala sífellt. Með Mobile Connect þjónustu fyrirtækis getur notandi tengst þráðlausu neti fyrirtækis fyrirhafnarlaust hvar sem er innan svæðis þess með sérstöku netkorti. Mobile Connect notar svokallaða GPRS/EDGE fjarskiptatækni sem tengir notandann við internetið. GPRS staðallinn eykur flutningshraðann margfalt innan GSM kerfisins og virkar tæknin einnig erlendis. Einnig er unnið að EDGE væðingu á höfuðborgarsvæðinu og Eyjafirði sem gerir netkortinu kleyft að velja hröðustu tenginguna sem er í boði hverju sinni. Finnst okkur hér á geim þetta bjóða ýmsa spennandi möguleika fyrir netspilun og geta leikjanotendur valdið usla í netspilun á kaffihúsum sem og í skírnum með þráðlausri Mobile connect tækni. Samkvæmt Ogvodafone verður eingöngu greitt fyrir niðurhal en ekki fyrir hvern þann tíma sem notandi er tengdur. Ekki líkur dýrðunum hjá Ogvodafone því einnig kynna þeir Blackberry tæknina sem  er samkvæmt kynningu Ogvodafone alhliða samskiptatæki sem er náskylt Gsm-tækninni en tekur á móti og sendir rafpóst eins og hver önnur tölva. Blackberry er alltaf tengt netinu og gerir notanda mögulegt að fylgjast með öllu og einnig nota svokallaða  "push" tækni sem gerir það að óþarfa að þurfa þjappa skrám eða aðhafast mikið varðandi netnotkun símans því allar sendingar eru í rauntíma og taka mun minna pláss en ella. Blackberry er einnig með 20 lykla QWERTY lyklaborði og stórum skjá. http://www.ogvodafone.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×