Matur

Japönsk matargerð er yndisleg

Ingibjörg var ekki há í loftinu þegar hún var farin að safna uppskriftum. "Ég fór oft í ferðalög með pabba og dáðist þá að bóndakonunum sem buðu upp á svo fínt bakkelsi. Ég fékk hjá þeim uppskriftir að kleinum, pönnukökum og kanilsnúðum, sumt uppskriftir sem ég nota ennþá," segir Ingibjörg, sem alltaf gerir stórinnkaup í Bónus en bætir svo við í gourmet-búðunum því sem hún notar sem punktinn yfir i-ið. "Krakkarnir mínir vilja helst þennan venjulega mat en ég geri stundum eitthvað aukalega fyrir mig og eiginmanninn."

Ingibjörg var búsett í Grikklandi fyrir þrettán árum og kynntist þar nýjum siðum í matargerð. "Mér fannst úrvalið þar ævintýri líkast og fór hamförum í að prófa nýja rétti. Þegar ég kom heim og ætlaði að elda smokkfisk þurfti ég að elta uppi karlana í beitningaskúrunum til að ná í hráefnið. Þetta hefur sem betur fer breyst."

Ingibjörg er flugfreyja og notar tækifærið þegar hún staldrar við í útlöndum til að fara á spennandi veitingastaði.

"Þá er ég oft eins og brjálaður vísindamaður að spá í samsetninguna á matnum. Í augnablikinu er ég mest heilluð af svokölluðu "fusion cuisine" og svo finnst mér japönsk matargerð yndisleg, ekki síst vegna þess að hún er svo falleg. Helmingurinn af ánægjunni felst í að maturinn líti vel út og sé fallega framreiddur. Fusion-eldhúsið er sérlega skemmtilegt og gengur út á að bera fram hefðbundinn mat á nýstárlegan hátt og blanda saman hráefni frá ýmsum löndum."

Ingibjörg er annáluð fyrir veislurnar sínar, sem stundum eru þematengdar. "Sömuleiðis finnst mér gaman að bjóða upp á smárétti og nýjasta matreiðslubókin mín er einmitt eftir fangelsisdrottninguna Mörthu Stewart. Hvað sem segja um Mörthu þá kann hún að búa til smárétti," segir Ingibjörg og hlær.

Ingibjörg vill hvetja lesendur til að fara í kósí lautarferð og gefur þeim uppskrift að því sem er skemmtilegt að taka með.

Undirstaðan að huggulegri lautarferð er að sögn Ingibjargar að undirbúa sig vel, eiga fallega körfu fyrir nestið og huggulegt teppi, hitabrúsa, servíettur og kælitösku, því þá er hægt að taka með kælifötu fyrir hvítvínið og sódavatnið og klaka í poka. Svo er hægt að fá einnota form í flestum matvöruverslunum svo maturinn sé í lokuðum formum. "Reglan er bara að hafa það eins kósí og hægt er!"

Tzatziki (grísk sósa)

1 dós sýrður rjómi

2-3 hvítlauksrif

1 tsk. Maldon salt

smá nýmalaður pipar

1 msk. ólífuolía

1 tsk. borð- eða hvítvínsedik

ca.1/4 kjarnhreinsuð agúrka

Heimalagað pesto

Slatti af fersku basil, slatti af fersku klettasalati, ristuðum furuhnetum, parmesanosti og ólífuolíu, salt og pipar í matvinnsluvél.

Pappadum

Saxið niður tómata, ferskt kóríander og cumin fræ (úr kryddstauk) og blandið saman til að nota með. Penslið með olíu og setjið hverja pappadum í örbylgjuofn í ca. 1 1/2 mín.

Gazpacho, köld súpa

1 rauð paprika

15 jalapeno piparsneiðar

1 lítill rauðlaukur

500 g tómatar

1 agúrka kjarnhreinsuð

3 msk ferskt kóríander

1/2 bolli tómatdjús (rúmlega)

2 msk ólífuolía

1 msk rauðvínsedik

2 msk ferskur límónusafi

1 tsk Maldon salt

1 /4 tsk nýmalaður pipar

1/3 af öllu grænmetinu, saxað niður, nokkuð fínt, rest sett í matvinnsluvél, hakkað saman og allt sett saman með sleif.

Brauðteningar

Ristið teningana með hvítlauksolíu og berið fram með súpunni.

Kjúklingaspjót:

Kjúklingabringur, gott að klippa niður í ræmur (marínerað til dæmis með tilbúinni teriyaki-maríneringu),

grilla eða steikja og taka með kalt. Gott er að hafa pítubrauð eða annað gott brauð og ferska niðurskorna ávexti og gott

súkkulaði með kaffi í eftirmat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×