Heildarvelta Bakkavarar tífaldast 8. mars 2005 00:01
Starfsmönnum Bakkavarar fjölgar úr 2500 í þrettán þúsund og heildarvelta samstæðunnar tífaldast með kaupum Bakkavarar á breska framleiðslufyrirtækinu Geest Plc. Kaupverðið nemur um 58 milljörðum íslenskra króna. Bakkavör Group hefur gert bindandi kauptilboð í Geest og hefur stjórn breska fyrirtækisins mælt með því að hluthafar taki tilboðinu. Með kaupunum verður Bakkavör leiðandi fyrirtæki í framleiðslu tilbúinna ferskra matvæla í Bretlandi. Yfirtökutilboð hljóðar upp á 655 pens á hlut en auk þess eru greidd sjö pens á hlutinn í arðgreiðslu. Samkvæmt þessu greiðir Bakkavör rúmlega 497 milljónir punda heildarverð fyrir Geest, eða sem samsvarar 57,7 milljörðum íslenskra króna. Geest var stofnað árið 1935 og er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki Bretlands á sviði tilbúinna matvæla. Félagið rekur 35 verksmiðjur í fimm löndum og eru starfsmenn þess um tíu þúsund talsins. Lýður Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, segir kaupin breyta gríðarlega miklu fyrir samstæðuna. Veltan fer í 122 milljarða króna miðað 12,7 milljarða árið áður. Hann segir það trú stjórnenda að þetta hafi mikil samlegðaráhrif sem skili sér til hluthafa félagsins.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent Tilefni til að varast svik á svörtum föstudegi Neytendur Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Viðskipti erlent Margrét hættir hjá RÚV um áramótin Viðskipti innlent Félögin þeirra högnuðust mest Viðskipti innlent Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Viðskipti innlent Hvernig bý ég mig undir barneignir? Viðskipti innlent Örgleði (ekki öl-gleði) Atvinnulíf Fleiri fréttir Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Veiðigjald á þorski nánast tvöfaldað milli ára Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Leggur til þrjár aðgerðir á ögurstundu fjölmiðla Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Bein útsending: Orkan, álið og kísillinn Opnar útibú Forréttabarsins á kunnuglegum stað Nefndarmaður hefði kosið að halda stýrivöxtunum óbreyttum Gagnrýna að seljendur og verktakar þurfi einir að lækka verð Stefnir í að eitt minkabú verði eftir á landinu Ráðin nýr markaðsstjóri Nettó og Kjörbúðanna Félögin þeirra högnuðust mest Útspilið hafi komið á óvart og hætta sé á minni uppbyggingu „Mikilvægt að skrifa ekki undir neitt nema vita hvað það er“ Margrét hættir hjá RÚV um áramótin Herða lánþegaskilyrði: „Við víkjum ekki frá þeim markmiðum“ 55 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankinn breytir reglum um greiðslubyrðarhlutfall Sjá meira