Call Of Duty 2 í vinnslu 7. apríl 2005 00:01
Activision og fyrirtæki þeirra Infinity Ward er komnir aftur í gang og eru að vinna að Call of Duty 2, glænýjum stórleik sem inniheldur ringulreiðina og spennuna sem var til staðar í Seinni Heimsstyrjöldinni. Þetta framhald af verðlaunaleiknum Call of Duty, Call of Duty 2, er keyrt áfram af nýrri grafíkvél sem sýnir ótrúleg umhverfi og fullkomna gervigreind, ásamt því að innihalda raunverulega bardaga og sprengjuhlaðinn hasar í glænýjum sögulegum herferðum. Leikurinn mun verða gefinn út í haust, en hefur enn ekki fengið aldursgreiningu. Call of Duty 2 gefur leikmönnum tækifæri á að upplifa sögur fjögurra hermanna þar sem þeir berjast gegn ofuröflum í fjölda herferða. Leikmenn hafa frelsi til að fylgja söguþræði leiksins sem hver persóna fyrir sig, eða að fara í gegnum leikinn í réttri tímaröð óháð persónum. Infinity Ward, framleiðandi fyrri leiksins, hefur einnig aukið breidd leiksins til að gera spilun hans enn raunverulegri. Herdeildir hafa nú frelsi til að taka að sér fjölda verkefna á stærri vígvöllum, en hægt er að leysa öll verkefnin á mismunandi vegu. Grafíkvél Call of Duty 2 og gervigreind eru grunnurinn af vel útfærðum bardögum og vönduðum hasar. Stundum getur borgað sig að fela sig þegar vígvöllurinn er fullur af reyk eftir reyksprengjur óvinarins. Veðurfar hefur áhrif og má þar til dæmis nefna sandstorma í Norður Afríku og snjóstorma í Rússlandi. Í leiknum kalla hermenn skipanir sín á milli og gefa upplýsingar um það sem framundan er, og er það gervigreind leiksins sem ákvarðar þær skipanir. “Forritarar okkar hjá Infinity Ward hafa það markmið að búa til einhvern spennuhlaðnasta skotleik sem gerður hefur verið og er hasarinn það mikill að leikmenn munu standa á öndinni,” segir Grant Collier, forstjóri Infinity Ward. “Með Call of Duty 2, erum við að búa til einhvern raunverulegasta og mest spennandi hasarleik sem gerður hefur verið, sem ásamt því inniheldur flottustu grafík og tækni sem sést hefur og hæsta raunveruleikastig hingað til.”
Geim-Fréttir Leikjavélar Mest lesið Andrea Róberts keypti einbýli sem þarfnast ástar Lífið Rómantísk útsýnisíbúð Bergrúnar Írisar til sölu Lífið Hefur ekki hugmynd um hvað tekur nú við Lífið Jörundur og Magdalena eignuðust dreng: „Ég skil ekki hvað ég hef gert til að eiga hana skilið“ Lífið Litrík hlaupagleði í Laugardalnum Lífið Georg í Sigur Rós keypti vistvænt hús við einn besta golfvöll landsins Lífið Katrín Edda og Markus opinbera kynið Lífið Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Tónlist Vandamálið við fætur, þeir eru í laginu eins og fætur Lífið samstarf „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Fleiri fréttir GameTíví: Plorrinn spilar Fallout Ghost of Tsushima: Kominn út á PC og enn geggjaður Senua’s Saga: Hellblade 2: Merkilega flott stafræn upplifun Lokabardagi Pingsins í Baldur's Gate Hryllingur og stríð hjá GameTíví Lokaþáttur Babe Patrol Veiða dýr og menn hjá GameTíví GameTíví: Plorrinn spilar Fallout Sjá meira
Jörundur og Magdalena eignuðust dreng: „Ég skil ekki hvað ég hef gert til að eiga hana skilið“ Lífið
Jörundur og Magdalena eignuðust dreng: „Ég skil ekki hvað ég hef gert til að eiga hana skilið“ Lífið