Nú kætist Krummi 20. ágúst 2005 00:01 Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri brosir væntanlega breitt þessa dagana. Borgarfulltrúar í höfuðborginni keppast nú við að kynna til sögunnar hugmyndir og tillögur í ætt við þær sem má sjá í fimm ára gamalli heimildarmynd hans "Reykjavík í öðru ljósi", þar sem hann útfærði á sjónrænan hátt ýmsar hugmyndir um framtíðarskipulag á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal byggð á eyjunum úti fyrir strönd borgarinnar, byggingar í Hljómskálagarðinum og umfram allt flugvöll á Lönguskerjum sem myndi opna fyrir byggð í Vatnsmýrinni. Og borgarbúar brosa örugglega langflestir með Hrafni. Eftir að hafa þurft að búa við kliðinn af ófrumlegri og staglgjarnri umræðu stóru fylkinganna í borginni í alltof langan tíma berast nú nýir og frísklegri tónar úr Ráðhúsinu. Auðvitað hafa kosningarnar, sem eru framundan næsta vor, sitt að segja í þessum efnum en ekki er óvarlegt að ætla að þessi skyndilegi hugmyndakippur um skipulag Reykjavíkur sé líka ákveðið viðbragð kjörinna fulltrúa í borgarstjórn við samtíma sínum. Það er mikill og vaxandi áhugi meðal borgarbúa um hvernig Reykjavík á að þróast. Hingað til hefur stefnan verið að byggja út á við, það er að segja að þenja sífellt út flatarmál borgarinnar og fjarlægjast þar með upprunalega miðju hennar. Sú stefna virðist vera að breytast. Bæði tillögur sjálfstæðismanna um byggð á landfyllingum og eyjunum úti fyrir ströndinni og frumkvæði R-listans í þá veru að losa um byggingaland í Vatnsmýrinni eru merki um stefnubreytingu í þá veru að nú eigi að byggja borgina upp innan frá. Þetta er mikið fagnaðarefni. Hugmyndir um flutning Reykjavíkurflugvallar eru enn á algjöru frumstigi en samkvæmt fyrstu fréttum virðast þær loks vera komnar upp úr hjólförum flokkspólitíkurinnar. Þó fyrr hefði verið. Staðsetning Reykjavíkurflugvallar er alltof mikið alvörumál til að vera reipitog milli sjálfstæðismanna í ríkisstjórninni og R-listafólks í borginni. Ekki skiptir minna máli að þeir sem hafa mestan hag af því að flugvöllurinn sé innan borgarmarkanna, FL Group og dótturfélagið hafa lýst yfir að á þeim bæ verði skoðað með opnum hug að færa völlinn. Full ástæða er til að hrósa Degi B. Eggertssyni, formanni skipulagsráðs Reykjavíkur, fyrir að koma málinu á þennan rekspöl á síðustu metrum R-listans í borgarstjórn. Ef kapallinn gengur upp og flugvöllurinn fer út á Löngusker á endanum er það ólíkt huggulegri arfleið í skipulagi borgarinnar en hin nýja Hringbraut, þetta sjö akreina ferlíki sem hlykkjast um Vatnsmýrina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fastir pennar Jón Kaldal Mest lesið 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Að segja „JÁ“ snýst um sanngirni og framþróun Nichole Leigh Mosty Skoðun
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun