Ólíklegt til að skila hæsta verði 5. apríl 2005 00:01 MYND/Páll
Fyrirkomulagið við sölu Landssímans er við fyrstu sýn fremur ógegnsætt og því ólíklegt til að skila núverandi eigendum hæsta mögulega verði, að mati greiningardeildar Landsbankans. Þetta á bæði við um þau skilyrði sem sett eru um samsetningu og svonefnda nægjanlega reynslu fjárfestahópsins, og eins um að mat verði lagt á hugmyndir og framtíðarsýn fjárfestanna. Þá segir greiningardeild Landsbankans að það komi á óvart að almenningi skuli ekki boðið að taka þátt í einkavæðingunni milliliðalaust, eins og gert var þegar ríkisbankarnir voru seldir. Ef skoðað er nánar hvað greiningardeildin á við þarna þá geta nýir kaupendur hagnast verulega á hagræðingu fram til ársloka árið 2007 að þeir verða að setja 30 prósent hlutafjár á almennan markað. Þá væri fyrirtækið orðið verðmætara en nú og hlutaféð þar með orðið dýrara en núna. Með ógegnsæi í fyrirkomulagi sölunnar á deildin væntanlega við að með því móti verði seljendum auðveldað að handvelja kaupendur, ef hugur þess stæði til þess, sem aftur gæti þýtt að ekki fengist eins hátt verð og ella. Stjórnvöld reikna með að geta selt Landssímann á allt að 60 milljarða króna, þótt engin tala sé formlega gefin upp.
Innlent Viðskipti Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira