Ósigrandi fiskisúpa 3. nóvember 2005 10:30 Snæfríður ingadóttir heimsótti nýja Íslendinga frá þrettán þjóðlöndum í sumar sem allir opnuðu dyr sínar og buðu í eldhúsið heima, um leið og þeir ljóstruðu upp gómsætum uppskriftum að ljúfmeti og vinsælum réttum frá föðurlandinu. "
Ég ætla að gefa lesendum uppskrift að fiskisúpunni sem aldrei klikkar," segir Snæfríður Ingadóttir, ritstjóri Flugstöðvarblaðsins og rithöfundur sem nú gefur út matreiðslubókina "Opið hús - menning og matur á Íslandi nútímans". "Ég fékk uppskriftina upphaflega frá systur minni sem fékk hana áður frá vinkonu sinni. Þetta er frábær súpa þegar halda á matarboð því hún er matarmikil, og með góðu hvítvíni og brauði er maður kominn með herramannsmáltíð fyrir gesti sína," segir Snæfríður sem dregur uppskriftina reglulega fram þegar hún býður gestum til borðs í eldhúsinu heima. "Það er ágætt að gera grunninn deginum áður, og ekki síst hentugt því sjálfur matarboðsdagurinn fer oftar en ekki í tiltekt og snúninga, svo gott er að vera kominn áleiðis með matinn, auk þess sem þessi súpa slær alltaf í gegn," segir Snæfríður sem býr ein með læðunni Systu, en sú er matvönd og lítt kröfuhörð á eldamennsku Snæfríðar heima. "Kisa vill ekki einu sinni soðinn fisk, en handa sjálfri mér elda ég alltaf hafragraut á morgnana. Það er oft eina eldamennska dagsins því ég nenni yfir höfuð ekki að leggja í mikla matreiðslu fyrir sjálfa mig, en læt veitingahúsin í nágrenninu frekar njóta góðs af matmálstímum mínum og sæki mér næringu þangað," segir Snæfríður sem staðið hefur á samfelldu sex mánaða matreiðslunámskeiði í því augnamiði að safna lystaukandi uppskriftum í nýju matreiðslubókina. "Við Þorvaldur Örn Kristmundsson ljósmyndari heimsóttum nýja Íslendinga, sem þegar allt er talið koma nú frá 140 þjóðlöndum. Það var því úr vöndu að ráða þegar við völdum úr þeim stóra hópi aðeins þrettán mismunandi þjóðerni, en verkefnið var einstaklega skemmtilegt, fólkið svo gestrisið og ferlið allt lærdómsríkt, ekki síst þegar kemur að eldhússtörfunum því ég hef nú þegar nýtt mér margar uppskriftirnar og hef meira að segja loksins keypt mér wok-pönnu í matseldina," segir Snæfríður glöð í bragði, en bók þeirra Þorvalds kemur út hjá Eddu útgáfu um miðjan nóvember.
Menning Mest lesið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið Lífið Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bíó og sjónvarp Íslenskur förðunarfræðingur í nýrri herferð Kardashian Tíska og hönnun „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Lífið Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Tíska og hönnun „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Er Rihanna best klædda mamma allra tíma? Tíska og hönnun „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Lífið Fleiri fréttir Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Setur heilsuna í fyrsta sæti í sumar Sjá meira