Með næstbestu ávöxtun í Evrópu 30. júní 2004 00:01
Icelandic Equity sjóðurinn hefur gengið næstbest af hlutabréfasjóðum Evrópu, með 18,6 prósenta ávöxtun á öðrum ársfjórðungi þessa árs, að því er fram kemur í viðskiptafréttum Bloomberg.com. Litið var til gengis allra sjóða í Evrópu á tímabilinu 31. mars til 22. júní. Icelandic Equity sjóðurinn hefur gengið næstbest af hlutabréfasjóðum Baldvin Ottó Guðjónsson, sjóðsstjóri Icelandic Equity, segir skýringuna að mestum hluta vera að íslenski markaðurinn hafi hækkað gríðarlega mikið eða um sextán prósent á öðrum ársfjórðungi. Flest lönd Evrópu hafi hins vegar ekki verið að skila mikilli ávöxtun. En svo hafi sjóðurinn einnig verið að gera enn betur en vísitalan. "18,6 prósent er ótrúlega há ávöxtun á þetta stuttum tíma," segir Baldvin. Baldvin segir þessar fréttir vera mjög ánægjulegar, þær veki athygli á íslenska markaðnum og sérstaklega vegna þess að hann sveiflist ekki í takt við flesta erlenda markaði. "Það er mjög áhugavert fyrir erlenda fjárfesta því það skiptir miklu máli þegar valin séu saman bréf í eignarsöfn að bréfin sveiflist ekki öll í takt. Þannig minnka sveiflur í ávöxtun sjóðanna." Baldvin segir að í auknum mæli heyrist frá erlendum fjárfestum sem hafi áhuga á íslenska markaðnum. KB banki sér um stýringu Icelandic Equity sem er skráður í Lúxemborg. Sjóðurinn fjárfestir einungis í hlutabréfum í Kauphöll Íslands og keppir við úrvalsvísitölu hennar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sjá meira