Makamál

Rúmfræði: Aldrei eins mikil sala á sleipiefni og blætisvörum

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Emilía, markaðsstjóri hjálpartækjaverslunarinnar Adams og Evu, segir sölu á hjálpartækjum hafa stóraukist í samkomubanninu. 
Emilía, markaðsstjóri hjálpartækjaverslunarinnar Adams og Evu, segir sölu á hjálpartækjum hafa stóraukist í samkomubanninu.  Getty

„Þetta hefur verið algjör sprengja. Netsalan hefur stóraukist sem og salan í búðinni og núna eru það pörin sem eru að kaupa mest.“ Þetta segir Emilía markaðsstjóri hjálpartækjaverslunarinnar Adams og Evu.

Mikið hefur verið tala um breytta kauphegðun Íslendinga í samkomubanninu en margar búðir hafa tekið upp á því að bjóða upp á fría heimsendingu og þar með stóraukið netsölu sína. 

Makamál höfðu samband við Emilíu markaðsstjóra Adams og Evu og fengu að forvitnast aðeins um hvort sala á hjálpartækjum hafi eitthvað breyst á tímum COVID og samkomubanns. 

Það sem kemur kannski mest á óvart er að núna eru það pör sem eru að kaupa mest hjá okkur. Bindigræjur og allskyns spil fyrir pör rjúka út. Sleipiefni, sem eru yfirleitt mest selda varan okkar, hafa líka aukist mikið í sölu. 

Upplifið þið að fólk sé feimið við að koma beint í búðina og nýti sér þá netverslunina frekar?

 „Við ákváðum að bjóða upp á fría heimsendingu í netverslun okkar þegar samkomubannið skall á svo að við sjáum mikla aukningu þar. En það sem gerðist líka var að salan í búðinni sjálfri jókst til muna. Fólk virðist því almennt bara vera að versla meira.“

Hver heldur þú að ástæðan sé fyrir svona mikilli aukningu í sölunni núna? 

Ætli fólk hafi bara ekki meiri tíma fyrir sig og sambandið núna. Kannski finnst fólki þetta bara vera góður tími til að gera smá tilraunir í svefnherberginu og leika sér saman. 

Getty

Emilía segir að frá því hún byrjaði að vinna í Adam og Evu fyrir fjórum árum síðan hafi hún séð mikla breytingu hjá almenningi varðandi kaup á hjálpartækjum. Hún segir fólk vera almennt orðið ófeimnara þó að það séu alltaf einstaklingar inn á milli sem finnast óþægilegt að koma inn. 

Það er alltaf einstaka karlmaður sem kemur inn og er þá að kaupa fyrir sig og vini sína sem þora kannski ekki að koma inn sjálfir. 

Makamál þakka Emilíu kærlega fyrir spjallið og fagna að sjálfsögðu aukinni leikgleði í svefnherbergjum landans. 


Tengdar fréttir

„Allir eiga að ganga með smokkinn“

Sigga Dögg kynfræðingur segir að grettistak þurfi til að nálgast smokkinn á opinskáan hátt. Samkvæmt niðurstöðum síðustu könnunar makamála notar aðeins helmingur verjur við skyndikynni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×