Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Láttu sem ekkert sé þó að einhver sé ekki eins og hann á að sér að vera. Sýndu þolinmæði og vertu almennilegur við viðkomandi.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Ekki dæma fólk eftir fyrstu kynnum. Reyndu frekar að komast að því hvern mann það hefur að geyma. Vertu umburðarlyndur gagnvart fólki og skoðunum þess.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Einhver leitar til þín eftir ráði. Þú skalt leggja þig fram um að veita þá aðstoð sem þú getur en ekki gefa ráð um það sem þú þekkir ekki.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú tekur til hendinni á heimilinu og ekki sýnist vera vanþörf á því. Það virðist sem eitthvað mikið standi til í fjölskyldunni.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Morgunninn verður rólegur og notalegur og þér gefst tími til að hugsa málin þar til eitthvað óvænt og ánægjulegt gerist sem breytir deginum.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Dagurinn verður fremur hefðbundinn en samt alls ekkert leiðinlegur. Þú nýtur þess að vera með fjölskyldu þinni og vinum.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú hefur einhverju hlutverki að gegna í samskiptum annarra í dag. Reyndu að miðla málum og ekki taka ósanngjarna afstöðu með öðrum aðilanum.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Það er margt sem kemur þér á óvart í dag, sérstaklega viðmót fólks sem þú þekkir lítið. Kvöldið verður rólegt.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Gættu þess að gleyma engu ef þú ert á ferðalagi eða að skipuleggja ferðalag. Þú hittir fólk sem þú hefur ekki séð í langan tíma.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Enginn veit jafnvel og þú hvernig best er að haga deginum í vinnunni svo þú skalt ekki láta aðra segja þér fyrir verkum.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þó þú viljir fá þínu framgengt skaltu ekki vera með yfirgang og þú verður að virða rétt annarra ef þú ætlar að fá þá til að virða þig.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú ert mjög samvinnuþýður um þessar mundir og ættir að forðast að samþykkja hvað sem er. Ekki láta ómerkilegt mál spilla annars ágætum degi.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Það verður mikið um að vera fyrri hluta dagsins og þú tekur ef til vill þátt í því að skipuleggja viðburð í félagslífinu. Kvöldið verður afar eftirminnilegt.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú skalt fara varlega í fjármálunum í dag og vera viss um að þeir sem þú átt viðskipti við séu fullkomlega heiðarlegir. Ekki eyða um efni fram.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þetta verður fremur viðburðalítill dagur en þér berast þó góðar fréttir af gömlum vini. Leggðu þig fram um að halda friðinn á heimilinu.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þú finnur þér nýtt áhugamál og það á einstaklega vel við þig. Þú átt mun meiri frístundir en þú hefur haft undanfarið og unir hag þínum vel.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Það virðast allir vera tilbúnir að aðstoða þig þessa dagana og þú skalt ekki vera feiminn við að þiggja þá aðstoð. Farðu þó varlega því ekki er allt sem sýnist.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú prófar eitthvað sem þú hefur aldrei reynt áður og það verður til þess að þú sérð margt með öðrum augum en áður. Þú ert hamingjusamur þessa dagana.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Dagurinn er einkar hentugur til að gera viðskiptasamninga þannig að ef þú hefur eitthvað slíkt í hyggju skaltu láta til skarar skríða.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Kannski ert þú ekki í sem bestu ástandi í dag en þú vinnur vel og færð hrós fyrir. Þú færð fréttir sem þú ættir ekki að taka of alvarlega.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Miklar breytingar verða á lífi þínu á næstunni. Þú fagnar þeim þar sem þér finnst tilveran hafa verið harla tilbreytingarsnauð undanfarið.

Menning