Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þér hættir til að vera of fús til að fórna þér fyrir aðra og í dag ættir þú að hugsa meira um sjálfan þig. Ljúktu því sem þú hefur lengi frestað.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Forðastu að vera uppstökkur því að það bitnar mest á sjálfum þér og þínu nánasta fólki. Horfðu á björtu hliðarnar á tilverunni.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú veist nákvæmlega hvað það er sem þú vilt en aðrir eru eitthvað að reyna að hræra í þér. Haltu þínu striki og þá gengur allt vel.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Einhver spenna liggur í loftinu á milli vina en það er þó ekkert til að hafa áhyggjur af. Þú átt í erfiðleikum með að einbeita þér og verður að taka þig á.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Vinur þinn hjálpar þér við erfitt verkefni en þú verður að launa honum greiðann. Þú skalt þó ekki gera neitt sem þér er alveg þvert um geð.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú gætir lent í erfiðleikum með að sannfæra fólk um það sem þér finnst. Þú mátt ekki taka það persónulega þó að hugmyndir sem þú hefur fram að færa mæti einhverri andstöðu.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ert í rólegu skapi í dag og ert ekki einn um það. Dagurinn verður mjög þægilegur og nægur tími ætti að gefast til að ljúka því sem þarf.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Farðu út og gerðu eitthvað sem veitir þér útrás, þá á þér eftir að líða betur. Kýldu á það sem þú þarft að gera í stað þess að eyða orkunni í það að vera með áhyggjur yfir því.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þér bjóðast ný tækifæri í dag og hittir mikið af áhugaverðu og skemmtilegu fólki. Ákveðin persóna kemur þér á óvart.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þó að þér finnist lífið erfitt um þessar mundir skaltu muna að tíminn læknar öll sár og hver veit nema hamingjan bíða handan götunnar?

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Það borgar sig að gefa öðrum hlutdeild í hugsunum sínum. Þeir geta áreiðanlega gefið góð ráð varðandi erfitt mál sem er að angra þig.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ef þér finnst eitthvað sem er í uppsiglingu ekki vera þér að skapi skaltu gæta þess að flækjast ekki í það. Þú þarft að vera betur á verði.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þó að þér finnist vinnan mikilvæg þessa dagana ættirðu ekki að taka hana fram yfir vini og fjölskyldu. Vertu hreinskilinn í samskiptum við fólk.

Menning