Heilsa

Út á guð og gaddinn

Bareigendur í Reykjavík segjast margir uggandi yfir komandi reykingabanni. Meðan einhverjir hyggjast fjárfesta í hitalömpum og byggja einhvers konar skjólveggi utandyra hafa aðrir ekki tök á slíku og telja það einnig vafasamt að þeir muni fá slíka aðstöðu samþykkta, til að mynda með tilliti til reglugerða um hávaða.

Heilsuvísir

Ekki lengur tilraun heldur bíó

Það hlýtur að teljast nokkuð sjaldgæft í íslenskri kvikmyndasögu að fólk taki sig saman, fjármagni og taki heila bíómynd á fjórum mánuðum. Aðstandendur Sveitabrúðkaups eru enda mikið bjartsýnisfólk. Kristrún Heiða Hauks­dóttir hitti ValdísiÓskarsdóttur, konuna sem sparkaði boltanum af stað.

Heilsuvísir

Mótvægi við Bandaríkin

Í fjórðu grein sinni í Fréttablaðinu veltir Mikhaíl Gorbatsjov því fyrir sér hvort nýju „risaríkin“ fjögur, Brasilía, Rússland, Indland og Kína, geti haft taumhald á Bandaríkjunum á alþjóðavettvangi.

Heilsuvísir

Hátíðarveisla fyrir fiskunnendur

Hátíð hafsins gengur í garð um helgina og við Reykjavíkurhöfn verður mikið um að vera. Í tilefni af hátíðinni verða tíu veitingastaðir í miðborginni með sérstaka matseðla helgaða fiskiveislu. Þeir eru Við Tjörnina, Hornið, Apótekið, Einar Ben, Salt, Þrír frakkar, Fjalakötturinn, Tveir fiskar, Vín og skel og DOMO. Allir matseðlar eru undir 5.000 krónum.

Heilsuvísir

Þjóðarrétturinn eldist vel

Anna Bergljót Thorarensen hefur lítinn tíma til eldamennsku þessa dagana. Þegar tími gefst til er þjóðarréttur fjölskyldunnar þó í uppáhaldi. „Þetta er þjóðarréttur okkar í Bakkahjalla 10, fjölskyldumaturinn,“ sagði Anna Bergljót, sem iðulega er kölluð Anna Begga, um uppskriftina sem hún deilir með lesendum Fréttablaðsins í dag. „Ég man eftir mér mjög lítilli að borða þennan mat. Við erum öll jafnhrifin af þessu, fjölskyldan,“ sagði hún.

Heilsuvísir

Smakkveisla Svía

Fyrir þá sem eru á leið til Norðurlanda eða eru búsettir á þeim slóðum er ekki úr vegi að sækja Stokkhólm heim á næstu dögum. Frá 1. til 6. júní stendur þar yfir viðamikil matarveisla sem um hálf milljón gesta sækir heim á ári hverju. Matarveislan kallast Smaka på Stockholm, eða Bragðaðu á Stokkhólmi, og fer fram í almenningsgarðinum Kungsträdgården.

Heilsuvísir

Bollur Bubba í Mat og lífsstíl

Þáttaröðin Matur og lífsstíll, í umsjón Valgerðar Matthíasdóttur, hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þar sækir Vala þekkta Íslendinga heim og fær þá til að elda uppáhaldsréttina sína fyrir áhorfendur. Þættirnir verða á dagskrá á fimmtudagskvöldum í sumar klukkan 20.05 og munu uppskriftir úr þeim birtast á síðum Fréttablaðsins. Það er tónlistarmaðurinn ástsæli Bubbi Morthens sem ríður á vaðið.

Heilsuvísir

Verðum bestir í London

Matreiðslumaðurinn Agnar Sverrisson ætlar að opna besta veitingastað í London á næstu vikum. Staðurinn, sem heitir Texture, mun státa af besta kampavínslista borgarinnar.

Heilsuvísir

Hlustun mikilvæg

Líðan sjúklinga með Alzheimer er efni opins fyrirlesturs sem hefst kl. 15 í dag á 1. hæð að Eiríksgötu 34.

Heilsuvísir

Sjúkranudd er fyrirbyggjandi meðferð

Sjúkranudd getur linað verki og spennu tengda hversdags- og atvinnulífinu. Ekki er allt nudd sjúkranudd. Sjúkranudd á sér langa sögu og er meðal elstu meðferðarforma sem vitað er með vissu að maðurinn hafi beitt í lækningaskyni.

Heilsuvísir

Öll orkan í kennsluna

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir hefur æft dans í nítján ár og miðlar af reynslu sinni á námskeiðum fyrir krakka í sumar. „Ég verð með dansnámskeið í sumar í Ballettskóla Guðbjargar Björgvinsdóttur ásamt Riinu Turunen, fyrir krakka á aldrinum tíu til tólf ára og þrettán til sextán ára,“ segir Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, dansari.

Heilsuvísir

Áhrif frá ýmsum löndum

Guðrún Kristjánsdóttir kynningarstjóri Listahátíðar hefur mjög gaman af því að elda. Þar sem Listahátíð stendur yfir er mikið að gera hjá henni og hún reynir því að hafa matreiðsluna einfalda og fljótlega þessa dagana.

Heilsuvísir

Holl og syndsamleg súkkulaðikaka

Leirlistakonan Þóra Breiðfjörð bakar syndsamlega góða súkkulaðiköku af sænsku ætterni og leggur mikið upp úr að matur sé fallega á borð borinn. „Ég er alveg veik í súkkulaði og mér finnst svona súkkulaðikökur alveg syndsamlega góðar.

Heilsuvísir

Gamlar matar­hefðir í kvöldgöngu

Félagið Matur-saga-menning stendur fyrir kvöldgöngu að Hafnabergi á Reykjanesskaga næstkomandi miðvikudagskvöld. Tilgangurinn með ferðinni er að minnast gamalla matarhefða landsmanna. Hafnaberg er staðsett sunnan við Hafnir og var fyrrum nýtt til bæði eggjatöku og fuglatöku. Margar tegundir sjófugla verpa í bjarginu, sem nú iðar af lífi, að því er segir í fréttatilkynningu.

Heilsuvísir