Veiði

Lifnar yfir Syðri Brú

Við heyrðum í Búa Gíslasyni veiðimanni sem var við veiðar í Syðri Brú í morgun ásamt veiðifélaga. Þeir félagarnir voru búnir að setja í tvo laxa um 6-7 pundið og báðir grálúsugir.

Veiði

17 laxar úr Víðidalsá í gær

Góðar fréttir bárust úr Víðidalsá í dag en veiðimenn settu í 17 laxa í gær og þar af var góður hluti af því smálax. Hitch-ið hefur verið að gefa meirihlutann af laxinum í sumar og var enginn breyting á því í gær.

Veiði

243 laxar komnir á land í Selá

Ein af þeim ám sem er að koma öllum á óvart þessa dagana er Selá í Vopnafirði. Á góðu ári hefur áin verið að skila rétt yfir hundrað löxum fyrstu tvær vikurnar en núna eru laxarnir orðnir 243! Það er frábær veiði þegar við tökum það inní myndina að aðeins er veitt á 4 stangir á þessum tíma.

Veiði

103 sm stórlax af Hrauni

Á föstudaginn sl. veiddist fyrsti lax sumarsins á Hrauni, 103 cm lúsugur hængur. Þetta var þykkur og fallegur lax eins og myndin sýnir en hann veiddist við Engey sem er neðst á svæðinu. Laxinn gæti því hugsanlega vegið 23 til 24 pund en honum var auðvitað sleppt. Hraun og hin svæðin neðan virkjunar voru mikil stórlaxasvæði hér í den en á því varð breyting upp úr 1980.

Veiði

Ánægjulegur veiðitúr í Hvannadalsá

Árni Eggertsson sendi okkur línu eftir skemmtilegan veiðitúr í Hvannadalsá 7-9 júlí en þetta var í fyrsta skiptið sem þeir félagar reyndu við ánna. Aðstæður voru erfiðar fyrsta daginn þar sem mikið vatn var í ánni en það fór minnkandi næstu daga á eftir.

Veiði

Góð urriðaveiði fyrir norðan

Það hefur verið líflegt á urriðasvæðunum eftir að sumarið gekk í garð nyrðra. Þurrfluguveiðimenn eru komnir á stjá í kjölfar hlýindanna síðustu daga.

Veiði

Fréttir úr Ytri Rangá

Ytri Rangá skilaði 13 löxum á sunnudag og tveir í viðbót veiddust í Hólsá. Að sögn Matta veiðivarðar í ánni var einhver reitingur í morgun og misstu veiðimenn meðal annars vænan lax, líklegast um 80 cm langan, á veiðistaðnum Djúpós.

Veiði

Federal skotin loksins fáanleg aftur á Íslandi

Vesturröst hefurtryggt sér umboð fyrir Federal ,CCI og American Eagle skot og hafa þeir fengið nýja sendingu af þeim og ein nákvæmustu verksmiðju hlöðnu skot sem hægt er að fá í dag Federal Premium í nokkrum caliberum.

Veiði

Stórlaxarnir bíða þín fyrir norðan

Veiðimenn sem eru á leið í Laxá í Aðaldal á næstunni ættu að líta í nýjustu Veiðifréttir SVFR en þar er að finna ítarlegt viðtal við Guðlaug Lárusson, stórveiðimann. Laxá í Aðaldal er hans heimavöllur og þar hefur hann dregið þá marga stóra í gegnum tíðina.

Veiði

Um 40 laxar komnir úr Korpu

Korpa var komin í um 40 laxa í morgun þegar Veiðivísi bar þar að garði. Einn lax var tekinn strax um klukkan sjö í morgun í Berghyl og var það eini laxinn sem sást til á neðstu stöðunum.

Veiði

Svalbarðsá komin í 37 laxa

Á hádegi í dag laugardaginn 9. júlí, höfðu veiðst 37 laxar í Svalbarðsá, en veiði hófst þar 1 júli. Á mynd er Agnes Viggósdóttir með glæsilegan 12 punda hæng úr einum besta stað í ánni, Forseta. Laxinn tók rauðan Francis með gullkrók #12.

Veiði

Metfiskur í Mývatnssveit

Frétt af Vötn og veiði. Metfiskur veiddist í Laxá í Mývatnssveit í morgun. 80 cm ferlíki sem rétti upp öngulinn um leið og hann smaug ofan í háfinn! Þetta er lengsti urriði sem veiðst hefur í Laxá á þessum slóðum, en ekki þó sá þyngsti.

Veiði

Svartá komin í 12 laxa

Heildartalan í Svartá er kominn uppí tólf laxa að sögn Vignis Björnssonar veiðivarðar. Fiskanir eru vænlegir tveggja ára laxar, frá 7-10 pund, og hafa þeir flestir komið á Sunray shadow, Svarta Francis og Þýska snældu. Eins og áður eru helstu veiðistaðirnir sem eru að gefa Ármót, Brúnarhylur og Krókeyrarhylur.

Veiði

Veiðisagan úr Krossá

Við sögðum frá því hér fyrr í dag að agætis kippur hefði komið í Krossá. Hér er smá pistill frá Daníel sem var ásamt félögum sínum við veiðar:

Veiði

Ytri Rangárnar bæta við sig

Alls veiddust 14 laxar í Ytri Rangá í gær og er það einum fleiri frá deginum áður. Þetta eru góð tíðindi því ekki nema tveir dagar síðan það komu einungis fimm laxar á land.

Veiði

Fluguveiði ekki bara karlasport

Það er alltaf gaman að fá skemmtilegar veiðimyndir. Sigurbjörg Jóhanna er greinilega komin með lag á að veiða Þingvallableikjuna, en hún tók þessar tvær fallegu bleikjur þar þann 5. júlí s.l. í 17° hita kl. 8 um morguninn. Það er fátt sem toppar fallegan morgunn á Þingvöllum þegar bleikjan er á svæðinu.

Veiði

Rólegt í Dölunum

Það er rólegt yfir veiðinni í Dölunum þessa stundina. Þó tvöfaldaði síðata holl veiðina í Krossá þegar að níu laxar fengust á tvær stangir.

Veiði

Veiði hafin á öllum svæðum Hreggnasa

Veiði er nú hafin í öllum ánum sem Veiðifélagið Hreggnasi er með á leigu og selur veiðileyfi í. Góð veiði hefur verið í Korpu og byrjunin í Svalbarðsá í Þistilfirði lofar mjög góðu. Gljúfurá í Húnaþingi var opnuð í gær og þar fékkst einn lax og nokkrar bleikjur. Rólegt hefur verið yfir veiðinni í Grímsá og Laxá í Kjós og Bugðu en menn eru vongóðir um að veiðin glæðist eftir stórstreymið nú um helgina og á morgun.

Veiði

Lax að ganga í Hvannadalsá

Við heyrðum í veiðimönnum úr Hvannadalsá. Þeir segja mikið vatn vera í ánni og frekar kalt úti. Lítið gekk hjá þeim til að byrja með á sunnudag en fór svo strax að ganga betur á mánudag, þá fengu þeir tvo laxa í Djúpafossi, annar um 90cm en hinn í kringum 83cm. Í gær beit hann svo á í Árdalsafossi og Árdalsfljóti en þeir voru í kringum 83cm, á meðan slagurinn stóð yfir sáu þeir um 10-15 laxa renna sér inn í Árdalsfljót.

Veiði

Veiðin gengur vel í Elliðaánum

Samkvæmt veiðivörðum stóðu Elliðaárnar í 176 veiddum löxum í gærkveldi. Stöðugar göngur eru í árnar en í nótt gengur 30 laxar gegnum teljarann við rafstöðina.

Veiði

Góð veiði í Straumunum

Síðasta holl í Straumunum var með 17 laxa á tveimur dögum á tvær stangir. Hollið þar á undan var með 16 laxa en mikið vatn er í vatnamótunum.

Veiði

Veiðidagar barna í Elliðaánum

Nú fer að líða að fyrsta veiðidegi barna í Elliðaánum og er mikil eftirvænting meðal yngri kynslóðarinnar. Töluverðar eftirspurnir hafa verið eftir plássum og hefur því einum degi verið bætt við þann 13.júlí næstkomandi. Enn eru örfá pláss laus þennan dag.

Veiði

Stórlax úr Víðidalnum

Við sögðum frá 101 cm laxi sem veiddist í Víðidalnum fyrir helgi og okkur bárust þessar myndir um helgina. Það er stórlaxaveiðimaðurinn Helgi Guðbrandsson sem brosir sínu blíðasta fyrir okkur með laxinum á þessum myndum.

Veiði

Góð veiði í vötnunum

Vatnaveiðin er á fullu þessa dagana og margir að gera fína veiði. Af vefnum hjá Veiðikortinu eru fréttir af mönnum sem hafa verið að gera fína veiði í Úlfljótsvatni og í Þingvallavatni.

Veiði