Fleiri fréttir

Tíu vilja stýra Skaupinu

Ríkisútvarpinu bárust 10 umsóknir um framleiðslu á Áramótaskaupinu 2017. Umsóknarfrestur rann út síðastliðinn mánudag en að sögn dagskrárstjóra sjónvarpsins tekur nú við úrvinnsla umsóknanna. Stefnt er að því að ljúka samningum um mitt sumar en þetta er í fyrsta skipti sem hægt er að sækja um framleiðslu Skaupsins í opnu ferli.

Birkifrjóið að fjara út en grasið að taka við

Lítið hefur verið um frjókorn í lofti í borginni síðustu vikuna en birkifrjótímanum er að ljúka. Grasið er hins vegar að taka við og frjótímabil þess gæti varað fram í september.

Listaverkin sem enginn hefur ánægju af lengur

Útilistaverk í Reykjavík eru mörg hver að grotna niður vegna skemmda og sum þeirra jafnvel farin að rifna af undirstöðunum og orðin hættuleg vegfarendum. Listasafn Reykjavíkur fær eina milljón á ári til að halda við 148 verkum.

Sextíu íbúðir fyrir eldri borgara

Samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var í gær mun Byggingarsamvinnufélagið Samtök aldraðra byggja 60 íbúðir fyrir eldri borgara á reit Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð.

Ótryggð verk Magnúsar í Grafarvogskirkju

Eftirlifandi eiginkona Magnúsar, leirlistamaðurinn Kolbrún Björgólfsdóttir eða Kogga, vill að kirkjan tryggi verkin en kirkjan hefur ekki svarað erindum hennar.

Mótmæla fyrirhuguðum framkvæmdum

Fjölmennur hópur íbúa í Kópavogi hefur skrifað undir tvær áskoranir þess efnis að svæði sem afmarkast af Hávegi, Álftröð og Skólatröð verði skipulagt í samráði við íbúa í nærliggjandi götum.

Skóarafjölskylda leggur skóna á hilluna

Skóvinnustofa Hafþórs lokar 1. júlí eftir fimmtíu ára starsemi í Garðastrætinu. Öll fjölskyldan hefur starfað í fyrirtækinu og börnin nánast alin upp á verkstæðinu.

Lögreglan vildi skerða ferðafrelsi ungs hælisleitanda

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi á dögunum úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að ungur hælisleitandi þyrfti að halda sig á dvalarstað sínum, það er í húsnæði Útlendingastofnunar í Reykjavík, og mætti ekki fara út fyrir svæði sem afmarkaðist af 50 metra radíus umhverfis húsnæðið.

Fullgilda viðauka við samþykkt um afnám nauðungarvinnu

Þorsteinn Víglundsson, félags-og jafnréttismálaráðherra, afhenti í morgun Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt stofnunarinnar um afnám nauðungarvinnu.

Fatimusjóðurinn gefur 8,6 milljónir til barna í Jemen

Fatimusjóðurinn, sem Jóhanna Kristjónsdóttir heitin stofnaði, afhenti UNICEF í dag 8,6 milljónir króna en fjármunirnir eru afrakstur söfnunar sem Jóhanna stóð fyrir allt þar til hún lést í maí síðastliðnum sem og afrakstur skákmaraþons Hrafn Jökulssonar og Hróksins.

Sérsveitin oftar en ekki á Þjóðhátíð

Sérsveitarmenn lögreglu hafa oft verið fengnir til aðstoðar við eftirlit á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þeir hafa þó ekki komist til þess undanfarin 3-4 ár en yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum segir lögreglu þar alltaf óska eftir aðstoð þeirra um verslunarmannahelgi. Þá hefur sérsveitin verið fengin með lögreglu í útköll vegna gesta Þjóðhátíðar.

Umsóknum um kennaranám fjölgaði um 30 prósent milli ára

Umsóknum um grunnskólakennaranám í Háskóla Íslands fjölgaði um 30 prósent milli ára. Þá er viðskiptafræði enn vinsælasta grein innan skólans og mikil aukning varð í umsóknum um nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun. Þetta kemur fram í frétttilkynningu frá Háskóla Íslands.

Vilja sameinast um sölu á lambakjöti

Markmiðið er að ná inn á betur borgandi markaði og við teljum það skynsamlegt að gera það á samræmdan hátt, segir Oddný Steina Valsdóttir, formaður Markaðsráðs kindakjöts.

Skotvopnaæfingum lögreglu fjölgað mikið

Almennir lögreglumenn fá tveggja vikna þjálfun á ári í skotvopnaburði. Það er mikil aukning frá því sem var fyrir þremur árum. Almenningur má búast við að sjá vopnaða sérsveitarmenn á útiskemmtunum í sumar.

Koma fyrir salernum fyrir ferðamenn á 15 stöðum

Vegagerðin vinnur að því að koma fyrir salernum fyrir ferðamenn á fimmtán stöðum á landinu. Stjórnstöð ferðamála telur það forgangsmál að bæta aðgengi að salernum á landsbyggðinni.

Borgarfulltrúar neikvæðir í garð varanlegs byssuburðar

Lögreglan verður með aukinn viðbúnað á fjölmennum samkomum í sumar vegna meintrar hryðjuverkaógnar. Vopnaðir lögreglumenn voru meðal annars á ferli á sjómannadaginn og verða aftur á Secret Solstice og 17. júní.

Sjá næstu 50 fréttir