Innlent

Lögreglan vildi skerða ferðafrelsi ungs hælisleitanda

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglan krafðist gæsluvarðhalds yfir hælisleitandanum en þeirri kröfu var hafnað. Þá var ákveðið að banna honum að fara lengri en 50 metra frá dvalarstað sínum.
Lögreglan krafðist gæsluvarðhalds yfir hælisleitandanum en þeirri kröfu var hafnað. Þá var ákveðið að banna honum að fara lengri en 50 metra frá dvalarstað sínum. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi á dögunum úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að ungur hælisleitandi þyrfti að halda sig á dvalarstað sínum, það er í húsnæði Útlendingastofnunar í Reykjavík, og mætti ekki fara út fyrir svæði sem afmarkaðist af 50 metra radíus umhverfis húsnæðið.

Taldi héraðsdómur að með ákvörðuninni væri ferða-og athafnafrelsi mannsins skert umfram það sem lögreglan hefði sýnt fram á að tilefni væri til og þar með brotið gegn meðalhófsreglu.



Sjá einnig: Krafðist gæsluvarðhalds yfir 17 ára hælisleitanda sem er andlega veikur


Forsaga málsins er sú að þann 9. maí síðastliðinn tók lögreglan ákvörðun um að hælisleitandinn skyldi halda sig innandyra á dvalarstað sínum í húsnæði Útlendingastofnunar. Átti sú ráðstöfun að gilda til 6. júní en lögreglan handtók piltinn, sem kveðst vera 17 ára, þann 16. maí vegna þess að hún taldi hann hafi brotið gegn ákvörðuninni með því að fara tvívegis út úr húsnæðinu.

Lögreglan krafðist gæsluvarðhalds yfir hælisleitandanum en héraðsdómur hafnaði því og þann 19. maí staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð. Þremur dögum síðar ákvað lögreglan að heimila piltinum ekki að fara lengra frá dvalarstað sínum en sem nam 50 metra radíus umhverfis húsnæðið.

Hælisleitandinn kærði þessa ákvörðun lögreglu til héraðsdóms sem felldi hann úr gildi eins og áður segir en lögreglan kærði þann úrskurð til Hæstaréttar. Hæstiréttur vísaði málinu hins vegar frá þar sem úrskurðurinn var ekki kæranlegur til réttarins.

Úrskurð héraðsdóms má sjá í heild sinni hér.


Tengdar fréttir

Krafðist gæsluvarðhalds yfir 17 ára hælisleitanda sem er andlega veikur

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að 17 ára hælisleitandi sem kom hingað til lands þann 27. desember síðastliðinn skuli ekki sæta gæsluvarðhaldi en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafði krafist gæsluvarðhalds yfir piltinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×