Innlent

Birkifrjóið að fjara út en grasið að taka við

Kjartan Kjartansson skrifar
Styrkur frjókorna var lítill í síðustu viku en grasfrjókornin eru að fara á kreik.
Styrkur frjókorna var lítill í síðustu viku en grasfrjókornin eru að fara á kreik. Vísir/Getty
Frjótíma birkitrjáa er að ljúka eftir öflugt tímabil í vor. Hlýnandi loftslag hefur valdið því að tímabilið hefur færst um tveimur vikum fyrr síðustu tíu árin, að sögn sérfræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Lok birkifrjótímabilsins er þó skammgóður vermir fyrir þá sem þjást af ofnæmi því grasfrjóum er byrjað að fjölga.

Ellý Renée Guðjohnsen, líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun sem annast mælingar á frjókornum í lofti, segir að birkitré blómstri í tvær til fjórar vikur. Nýjustu mælingar frá því í síðustu viku sýni að birkið sé að verða búið að blómstra í ár.

„Ég reikna með að þetta séu síðustu dagarnir,“ segir hún í samtali við Vísi.

Hæsta frjótala á Akureyri í einum mánuði

Veðrið nú í byrjun sumars er ekki það eina sem hefur áhrif á styrk og lengd frjókornatímabilsins. Ellý segir að veðrið á vorin hafi mikil áhrif á hvernig birkið hegði sér og sömuleiðis haustið á undan. Reklar birkisins, blóm þess sem frjóin koma úr, þroskist á haustin.

Hlýindi og þurrviðri í maí og góð veðurskilyrði þegar birkireklarnir þroskuðust síðasta haust ollu því að frjótala birkis á Akureyri var sú hæsta sem mælst hefur í einum mánuði. Í Garðabæ var heildarfjöldi frjókorna í maí sá næstmesti í sjö ár, að því er kemur fram á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar.

Heildarfjöldi frjókorna í maí reyndist sá næstmesti í sjö ár. Birkifrjó voru algengust og aðeins einu sinni áður, árið 2011, hefur mælst svipað magn birkifrjóa í þeim mánuði. Mældust þau samfellt frá 17.maí.

Frjótímabili grass getur náð fram í september

Gras er hins vegar skæðasti ofnæmisvaldurinn þegar kemur að frjói á Íslandi. Mismunandi tegundir þess blómstra á mismunandi tímum sumarsins. Ellý segir að grasið geti þannig blómstrað frá júní og fram í september.

„Ég er aðeins farin að fá gras í gildrurnar núna í júní. Það getur haldið áfram fram á haust,“ segir hún

Birkið alltaf að blómgast fyrr

Undanfarin tíu ár hefur frjókornatímabil birkisins færst fram um tvær vikur og grasið hefur sömuleiðis blómstrað fyrr á sumrin. Ellý segir að það sé líklegast vegna þeirrar hlýnunar sem hefur átt sér stað.

„Það er eins og birkið sé alltaf að blómgast fyrr frá upphafi mælinga. Það er alltaf að verða fyrr. Það er eins og frjótíminn sé að færast framar,“ segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×