Innlent

Yfirmaður kanadískrar flugsveitar safnaði fyrir Umhyggju

Benedikt Bóas skrifar
William Mitchell, undirofursti í kanadíska flughernum, hleypur eftir Reykjanesbrautinni.
William Mitchell, undirofursti í kanadíska flughernum, hleypur eftir Reykjanesbrautinni. Landhelgisgæslan
Í gær hljóp William Mitchell, undirofursti í kanadíska flughernum og yfirmaður flugsveitarinnar sem sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins, 46 kílómetra leið á milli Reykjavíkur og Keflavíkur.

Mitchell, sem er bæði flugmaður CF-18-orrustuþotu og langhlaupari, vildi með hlaupinu safna fé fyrir Umhyggju, félag langveikra barna, og stefndi flugsveitin að því að safna 1.500 kanadískum dollurum, um 114 þúsund krónum. Verður söfnunarféð afhent fulltrúum Umhyggju á föstudag. Enn er ekki komið í ljós hve mikið safnaðist en allt bendir til að takmarkið hafi náðst, segir í tilkynningu.

„Hlaupið var býsna erfitt en þetta var samt algerlega einstakt tækifæri til að láta gott af sér leiða fyrir þá sem þurfa á hjálp að halda. Ég er sannfærður um að söfnunarféð renni til einstaklega góðs málefnis en ég er líka vongóður um að þetta framtak verði til að vekja athygli á þeim stuðningi sem Umhyggja getur veitt fjölskyldum sem þurfa á slíku að halda. Það er afar mikilvægt að láta gott af sér leiða og aðstoða þegar maður getur og ég er mjög stoltur af því að hafa fengið tækifæri til þess,“ sagði undirofurstinn, sem lauk hlaupinu á fjórum klukkustundum, þrjátíu mínútum og 33 sekúndum.

Frá því um miðjan maí hafa um 180 liðsmenn flugsveitar úr kanad­íska flughernum haft aðsetur á öryggissvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli með sex CF-18 Hornet orrustuþotur. „Við höfum fengið mjög góðar móttökur hjá Keflvíkingum og liðsmenn okkar hafa notið fádæma gestrisni um allt land.

Við vildum sýna þakklæti okkar í verki með því að gefa samfélaginu eitthvað til baka og því hafa liðsmenn sveitarinnar safnað fé fyrir Umhyggju.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×