Innlent

Fullgilda viðauka við samþykkt um afnám nauðungarvinnu

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Þorsteinn Víglundsson afhendir fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar um afnám nauðungarvinnu.
Þorsteinn Víglundsson afhendir fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar um afnám nauðungarvinnu. Velferðarráðuneytið
Þorsteinn Víglundsson, félags-og jafnréttismálaráðherra, afhenti í morgun Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt stofnunarinnar um afnám nauðungarvinnu.

Í bókuninni er meðal annars kveðið á um skyldu viðkomandi aðildarríkis að grípa skuli til virkra ráðstafana til að koma í veg fyrir nauðungarvinnu. Ríkinu ber að veita fórnarlömbum nauðungarvinnu vernd og aðgang að úrræðum. Auk þess er aðildarríkinu gert að leiða það í lög að þeir sem standi fyrir nauðungarvinnu sæti viðurlögum.

Kveðið er á um þær skyldur sem á aðildarríkjunum hvíla sem eru að móta stefnu og áætlun um markvisst afnám nauðungarvinnu í samráði við samtök atvinnurekenda og launafólks. Í bókuninni er sérstaklega kveðið á um að ráðstafanir, sem gerðar eru, skulu einnig fela í sér „sérstakar aðgerðir gegn mansali í tengslum við nauðungarvinnu eða skylduvinnu.“

Aðildarríkin ræða aðkallandi verkefni

Alþjóðavinnumálaþingið kemur árlega saman í júnímánuði í Genf og var þetta ár engin undantekning. Fundur þeirra Þorsteins og Ryders var haldinn af tilefni 106. þings Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem hófst 5. júní og lýkur næstkomandi föstudag. Á þinginu hafa sendinefndir aðildarríkja Alþjóðavinnumálastofnunarinnar fjallað um aðkallandi verkefni á sviði félags-og vinnumála. Flutningur vinnuafls, loftslagsbreytingar, vinnuvernd og heilsa voru þar til umfjöllunar, svo einhver mál séu nefnd.

Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasamband Íslands.Vísir/GVA
Segir baráttuna halda áfram

Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, er einn fulltrúa íslensku sendinefndarinnar á þinginu í Genf sem hún segir vera stærsta alþjóðlega viðburðinn þar sem vinnumarkaðsmál eru rædd. Fulltrúar í sendinefndinni séu í hringiðu alþjóðapólitíkur.

Í samtali við Vísi segir Drífa að fullgildingin sé mikið fagnaðarerindi.

„Það er náttúrulega alltaf mjög ánægjulegt þegar Ísland staðfestir bæði sáttmála og viðauka við sáttmálana því þá erum við hluti af alþjóðasamfélaginu og staðfestum það að við erum að gera þetta samkvæmt því sem alþjóðastaðlar segja til um.“

Spurð að því hvort nefndin sé með þessu að boða miklar breytingar í málaflokknum segir Drífa:

„Við erum búin að vera í þessari baráttu lengi og hún heldur áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×