Vísir

Mest lesið á Vísi



Ísland í dag - Kælir í garðinum og skúr til að reykja vindla og hnýta fyrir veiðina

Það þarf ekki nema pínulítinn garð til að gera ævintýralega fallegt umhverfi. Í miðbænum býr hin listræna Ragnheiður Ólafsdóttir ásamt manni sínum Pétri Maack í fallegu gömlu húsi sem þau hafa nostrað við í mörg ár. En þau sýndu einmitt Sindra Sindrasyni þetta einstaklega fallega hús í þættinum Heimsókn fyrir mörgum árum. Garðurinn hjá þeim er með fjölærum dásamlegum plöntum og blómum. En Ragnheiður segir að það sé alveg upplagt að fá sem mest af afleggjurum því þannig verði garðurinn fjölbreyttur. Þau eru með skemmtilegan kæli í garðinum. Og svo byggðu þau hjónin lítinn skúr þar sem húsbóndinn getur reykt vindla og hnýtt fyrir veiðiferðirnar. Og þó garðurinn sé ekki stór halda þau iðulega veislur í garðinum og jafnvel brúðkaup. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði þennan ævintýralega litla garð.

Ísland í dag