Landsbankinn
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 10 ›
Nær ómöglegt að hætta við kaupin Nær ómögulegt er fyrir Landsbankann að hætta við að kaupa TM að mati dósents við Háskóla Íslands. Hætti bankinn við séu allar líkur á að hann baki sér skaðabótaskyldu. Fjármálafyrirtæki hafi undanfarið keypt tryggingafyrirtæki og því ekkert óeðlilegt við kauptilboðið. Innlent 21.3.2024 21:00
Samfylkingin slær ryki í augu almennings Málflutningur Samfylkingarinnar í máli fyrirhugaðra kaupa Landsbankans á Tryggingamiðstöðunni veldur miklum vonbrigðum.Það var til að mynda ótrúlegt að hlusta á formann Samfylkingarinnar í Kastljósi í gærkvöldi. Í aðra röndina talaði hún um sjálfstæði Bankasýslunnar, en í hina lýsti hún mikilli furðu yfir því að fjármálaráðherra hefði ekki stigið sjálf fyrirfram inn í kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Skoðun 20.3.2024 19:00
Tilboð Íslandsbanka í TM var með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Tilboð Íslandsbanka, sem er að minnihluta í eigu ríkissjóðs, í allt hlutafé TM var meðal annars háð því skilyrði að kaupin yrðu í kjölfarið samþykkt af hluthöfum bankans. Því var hins vegar ekki fyrir að fara hjá Landsbankanum þegar fallist var á skuldbindandi tilboð hans upp á samtals nálægt 30 milljarða króna í tryggingafélagið. Innherji 20.3.2024 17:00
„Sjálfgræðismenn“ vilji koma Landsbankanum í hendur auðmanna Stefán Ólafsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, segir „sjálfgræðismenn“ í Sjálfstæðisflokknum hafa önnur áform en að láta rekstur Landsbankans skila góðum árangri á meðan hann er í eigu ríkisins. Pólitískt upphlaup Sjálfstæðismanna vegna kaupa Landsbankans á TM sé vegna þessa áforma. Innlent 19.3.2024 22:53
Landsbankinn gæti bakað sér bótaskyldu með því að hætta við Fari svo að Landsbankinn dragi skuldbindandi kauptilboð í allt hlutafé TM trygginga af Kviku banka til baka gæti síðarnefndi bankinn að öllum líkindum krafist skaðabóta. Fjármálaráðherra hefur sagt að kaupin gangi ekki í gegn með hennar samþykki nema söluferli á Landsbankanum hefjist samhliða. Það hefur forsætisráðherra sagt ekki koma til greina á hennar vakt. Innlent 19.3.2024 21:46
Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna um fyrirætlanir sínar um kaup á TM tryggingum að mati fjármálaráðherra. Það samræmdist ekki stefnu stjórnvalda að bankinn haslaði sér völl í Tryggingarstarfsemi. Innlent 19.3.2024 19:21
Bauð talsvert betur en Íslandsbanki í baráttunni um að kaupa TM Fjórum mánuðum eftir að Kvika hafði hrundið af stað formlegu söluferli á TM var það ríkisfyrirtækið Landsbankinn, stærsti banki landsins á alla helstu mælikvarða, sem skilaði inn álitlegasta tilboðinu í allt hlutafé tryggingafélagsins – og ætlar sér núna að blása til sóknar þvert á vilja eigandans. Bankinn naut ráðgjafar fyrrverandi forstjóra annars tryggingafélags til margra ára við kaupin og er sagður hafa augljóslega langað mest allra tilboðsgjafa að komast yfir TM. Innherji 19.3.2024 15:03
Aðalfundi Landsbankans frestað Bankaráð Landsbankans ákvað á fundi sínum í dag að fresta aðalfundi bankans sem fara átti fram á morgun. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins hefur verið ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl. Viðskipti innlent 19.3.2024 13:50
Vill samskipti Þórdísar við Bankasýsluna upp á borð Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, furðar sig á því að Bankasýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekki brugðist við orðrómi um að Landsbankinn hygðist kaupa TM. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:49
Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:36
Skynsemi í rekstri Landsbankans Landsbankinn virðist hafa verið betur rekinn undanfarin ár en hinir bankarnir, einkabankinn Arion og Íslandsbanki sem hefur verið að hluta í einkaeigu. Afkoman hefur oft verið betri hjá Landsbankanum og hann hefur verið með langlægsta kostnaðarhlutfallið. Skoðun 19.3.2024 11:30
„Þetta er að verða komið gott“ Formenn Miðflokksins og Samfylkingarinnar eru sammála um að fyrirhuguð sala ríkisins á Landsbankanum fari gegn eigandastefnu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin tali í kross og málið beri þess merki að hún sé ekki sammála um grundvallaratriði. Innlent 18.3.2024 22:48
Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar. Innlent 18.3.2024 22:28
Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Bankasýsla ríkisins hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvarðanatöku og upplýsingagjöf bankaráðs Landsbankans um kaup bankans á TM. Bankasýslan krefst þess að aðalfundi Landsbankans verði frestað um fjórar vikur vegna fyrirséðra áhrifa kaupanna á dagskrá, umræður og niðurstöður fundarins. Innlent 18.3.2024 21:57
Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Bankastjóri Landsbankans segist hlusta á fjármálaráðherra vegna fyrirhugaðra kaupa bankans á TM tryggingum. Það sé hins vegar hennar hlutverk að reka bankann og auka verðmæti hans. Innlent 18.3.2024 19:20
Tekur ekki þátt í að selja hlut í Landsbankanum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ljóst að hún muni ekki taka þátt í því að selja hlut ríkisins í Landsbankanum. Þetta sagði Katrín í svari við fyrirspurn Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Innlent 18.3.2024 16:22
Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki vera ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag nær eingöngu í eigu ríkisins. Bankinn muni halda áfram ferlinu við kaup á TM tryggingum þrátt fyrir andstöðu fjármálaráðherra. Viðskipti innlent 18.3.2024 13:09
Kvika tók kipp Gengi hlutabréfa Kviku banka hækkaði um tæplega fjögur prósent í fyrstu viðskiptum eftir að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 9:30 í morgun. Viðskipti innlent 18.3.2024 09:55
„Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsir óánægju sinni með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Hún segir að ríkisfyrirtæki eigi ekki að kaupa tryggingafélög og að viðskiptin verði ekki samþykkt af henni, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða. Viðskipti innlent 17.3.2024 22:10
Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Kviku banka hafa borist skuldbindandi tilboð um kaup á hlutafé TM trygginga hf. en bankinn hefur verið með TM í söluferli í samræmi við tilkynningu þann 17. nóvember 2023 og síðari tilkynningar þess efnis. Viðskipti innlent 17.3.2024 17:48
Landsbankinn lækkar vexti Landsbankinn kynnti í dag að bankinn muni lækka vexti á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum með fasta vexti. Munu fastir vextir til þriggja ára á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,3 prósentustig. Hið sama á við fasta vexti til fimm ára. Neytendur 15.3.2024 17:38
Jón kemur nýr inn í bankaráð Landsbankans og verður formaður Jón Þ. Sigurgeirsson, sem hefur undanfarin tvö ár verið efnahagsráðgjafi viðskiptaráðherra, er tilnefndur af Bankasýslu ríkisins sem annar af tveimur nýjum bankaráðsmönnum Landsbankans. Lagt er til að Jón, sem starfaði um langt árabil hjá Seðlabankanum, verði formaður bankaráðs. Innherji 15.3.2024 17:14
Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Íslandsbanki spáir því að ársverðbólga verði um 6,5 prósent í mars og lækki örlítið á milli mánaða. Landsbankinn spáir því að ársverðbólga verði óbreytt 6,6 prósent í mars. Greinendur beggja banka eiga von á því að verðbólgan hjaðni rólega næstu mánuði og verði um 5,4-5,3 prósent um mitt ár. Bankarnir birtu báðir spár sínar í dag. Viðskipti innlent 14.3.2024 16:54
Árslaun stjórnarformanna bankanna hlupu á tugum milljóna Stjórnarformenn Íslandsbanka, Kviku banka, Arion banka og Landsbanka voru með á bilinu 1,1 til 2,2 milljónir króna í mánaðarlaun fyrir að gegna starfi stjórnarformanns. Öll sinna þau öðrum störfum samhliða formannssetunni Viðskipti innlent 7.3.2024 08:22
Rændur af þjófum í Landsbankanum Í hið minnsta einn viðskiptavinur Landsbankans varð fyrir barðinu á þjófum við hraðbanka í vikunni sem leið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Innlent 23.2.2024 13:31
Helga hættir sem formaður bankaráðs Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, sem hefur setið í bankaráði frá árinu 2013 og verið formaður þess frá árinu 2016, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bankaráði á aðalfundi bankans í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landsbankans. Viðskipti innlent 23.2.2024 10:02
Bjóða Grindvíkingum að færa fasta vexti Landsbankinn býður Grindvíkingum sem eru með íbúðalán á föstum vöxtum hjá bankanum og ákveða að selja ríkinu íbúðarhúsnæði sitt að halda þeim kjörum sem eru á láninu við kaup á nýrri fasteign. Viðskipti innlent 22.2.2024 16:28
Verðbólga haldi áfram að hjaðna Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga hjaðni úr 6,7 prósent í 6,1 prósent í febrúar. Þrátt fyrir það hækki vísitala neysluverðs um 0,89 prósent en veruleg hækkun febrúar á síðasta ári, 1,4 prósent, veldur því að ársverðbólgan lækkar. Neytendur 15.2.2024 11:35
Amaroq freistar þess að sækja sér allt að sjö milljarða í aukið hlutafé Málmleitarfyrirtækið Amaroq Minerals, sem er meðal annars skráð í Kauphöllina á Íslandi, freistar þess að sækja sér umtalsvert fjármagn frá fjárfestum í aukið hlutafé en félagið áformar að hefja gullvinnslu á Suður-Grænlandi síðar á árinu. Amaroq og ráðgjafar félagsins eiga nú í markaðsþreifingum við ýmsa innlenda fjárfesta, samkvæmt upplýsingum Innherja, og standa væntingar til þess að útboð upp á fimm til mögulega um sjö milljarða króna verði klárað yfir helgina. Innherji 10.2.2024 16:34
Hagnaður Landsbankans 33 milljarðar á síðasta ári Hagnaður Landsbankans á árinu 2023 nam 33,2 milljörðum króna eftir skatta og var arðsemi eiginfjár 11,6 prósent. Bankaráð hyggst leggja til við aðalfund bankans að bankinn greiði 16,5 milljarða króna í arð á árinu 2024. Viðskipti innlent 1.2.2024 12:32