
Grunnur réttindanna
Því get ég lofað þér, lesandi góður, að ef þú skellir þér inn á hið alltumfaðmandi internet verður þér ekki skotaskuld úr því að finna pistla þar sem lítið er gert úr baráttudegi verkalýðsins. Fólk mun velta sér upp úr því að hann hafi ekki lengur neitt gildi, sé úreltur, jafnvel rifja upp horfna tíð þegar það var börn og allt var betra og kannski fylgir ein vonbrigðasaga, eða tvær, frá deginum. Það er gott og blessað, en breytir þó ekki þeirri staðreynd að af öllum þeim frídögum sem launafólk fær er enginn sem ætti að standa því nær.