Fókus - Edda Björgvinsdóttir - Hefur leikið í nítján áramótaskaupum

Edda Björgvinsdóttir fer yfir fjölbreyttan og skemmtilegan feril sinn. Hún hefur meðal annars leikið í nítján áramótaskaupum á ferlinum, því fyrsta skömmu eftir útskrift úr leiklistaskóla. Þar birtist hún ásamt Sigurði Sigurjónssyni sem þá var líka að stíga sín fyrstu skref, og hlaut heldur óblíðar viðtökur hjá gagnrýnanda Mánudagsblaðsins, "Honum fannst þetta ömurlegt, og viðbjóðslegt, og skildi ekki hvað væri verið að draga fram þessi börn sem væru ekkert fyndin," segir Edda brosandi. Úr Fókus á Stöð 2.

4473
19:53

Vinsælt í flokknum Fókus