Múm - Candlestick

Nýtt myndband við lagið Candlestick af nýjustu plötu Múm, Smilewound, sem kom út í byrjun september. Leikstjóri var Magnús Leifsson, Árni Filippusson var tökumaður, Sigurður Eyþórsson klippti, Henrik Linnet sá um hreyfimyndahönnun og Arnar Ásgeirsson var aðstoðarleikstjóri. Þetta er fimmta myndband þeirra félaga. Þeir hafa áður gert myndbönd fyrir Hjaltalín, FM Belfast, Ólaf Arnalds og Retro Stefson. Myndband þeirra við lagið Glow með Retro Stefson var valið myndband ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Sigurlaug Gísladóttir, betur þekkt sem Mr. Silla, söngkona Múm heklaði grímuna sem huldumaðurinn í myndbandinu ber.

2062
03:34

Vinsælt í flokknum Tónlist