Stöð 3 fer í loftið á laugardag

Stöð 3 fer í loftið á laugardagkvöld en það er ný sjónvarpsstöð í eigu 365 miðla. Stöð 3 er ætlað að höfða til yngri áskrifenda, á aldrinum 20-35 ára. Innlend dagskrágerð verður í bland við erlenda sjónvarpsþætti. Meðal annars má nefna að Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir verður með skemmtilegan matreiðsluþátt. Páll Óskar mun einnig stýra makaleitarþætti. Stórir erlendir sjónvarpsþættir á borð við bandaríska X-Factor, framhaldsþættirnir Shameless, Banshee o.fl. verða á dagskrá. Stöð 3 verður innifalið í áskrift af Stöð 2 og því munu áskrifendur Stöð 2 hafa aðgengi að nýrri sjónvarpsstöð frá og með 8. september. Fleiri breytingar verða á sjónvarpsstöðvum 365 því að krakkarnir munu eignast sína eigin sjónvarpsstöð. Hingað til hefur Krakkastöðin verið í samfloti með Stöð 2 Gull en verður nú á sérstakri rás með dagskrá frá morgni til kvölds. Á heimasíðu Stöð 3, stod3.is, má finna frekari upplýsingar um stöðina og þar er einnig hægt að kaupa áskrift.

5345
01:04

Vinsælt í flokknum Þriðjudagskvöld