Stjörnuleikur KKÍ 2010 í Seljaskóla

Það var mikið fjör á Stjörnuleikshátíð KkÍ í gær og annað árið í röð sló í gegn leikur Celeb-liðsins við gamla landsliðsmenn. Gömlu landsliðsmennirnir höfðu betur annað árið í röð en þeir frægu voru með skýringar á tapinu á tæru þegar Vísir heyrði í þeim eftir leikinn. Hér með þessarri frétt má finna skemmtilega samantekt af Stjörnuleikshátíðinni þar sem eru viðtöl við kunna kappa eins og Egill Gillzenegger Einarsson, Auðunn Blöndal, Hjörvar Hafliðason og Guðmundur Benediktsson sem voru í aðalhlutverki í celeb-liðinu. „Við komum hérna á næsta ári og pökkum þessum körlum saman. Menn verða reknir úr liðinu okkar. Jógvan, þú ert rekinn, Hjöbbi, rekinn og Gummi Bem, rekinn. Það þarf að taka til í liðinu," sagði Egill Gillzenegger Einarsson meðal annars í viðtali eftir leikinn í gær.

13081
03:41

Vinsælt í flokknum Sport