Ferðast í sýndarveruleika
Ný tegund ferðamennsku er að ryðja sér til rúms hér á landi eða svokölluð sýndarveruleikaferðamennska. Þá er hægt að kynnast landinu á nýjan hátt og fá um leið að upplifa sjónarhorn fuglsins fljúgandi. Farið er á margar helstu náttúruperlur landsins eins og Jökulsárlón og Ásbyrgi.