Áhyggjur af andlegri heilsu mannsins rötuðu ekki á borð lögreglustjóra
Áverkar mannsins sem varð fyrir skoti á heimili sínu á Blönduósi í gærmorgun eru alvarlegir og liggur hann þungt haldinn á sjúkrahúsi. Árásarmaðurinn var skotáhugamaður með geðrænan vanda en lögreglustjóri segist ekki hafa vitað um andlegt ástand hans líkt og skotveiðifélagið á svæðinu hefur haldið fram.