Eurovisionsöngur í Ísaksskóla

Eurovisionstemning er hjá nemendum Ísaksskóla í þessari viku. Krakkarnir, sem eru á aldrinum fimm til níu ára, halda söngstund alla föstudagsmorgna þar sem þau syngja saman fyrir foreldra. Krakkarnir tóku æfingu í dag fyrir söngstundina á morgun sem að sjálfsögðu er tileinkuð Eurovision en krakkarnir ætla að taka lag tónlistarmannsins Páls Óskars Hjálmtýssonar, "Við vinnum þetta fyrir fram." Þau hafa mikla trú á framlagi íslendinga í ár og hlakka til að sjá Hatara stíga á stokk á stóra sviðinu í Tel Aviv á laugardaginn.

567
02:45

Vinsælt í flokknum Fréttir