Ísland í dag - Næstum 100 ára og megahress og hamingjusöm!

Hvernig er hægt að verða nærri hundrað ára og vera samt megahress og hamingjusamur? Vala Matt hitti tvo níræða töffara sem sýna okkur nokkur trix til að verða hress og kát á þessum aldri. Veðurfræðingurinn Páll Bergþórsson, 96 ára, vakti landsathygli í fyrra fyrir að fara í fallhlífastökk og hann sýnir okkur hvað hann borðar á hverjum degi til að halda góðri heilsu, sem er skemmtilega sérvitringslegt, auðvelt og ódýrt. En Páll byrjaði ekki á þessari heilsurútínu fyrr en hann var orðinn níræður. Og sonur hans Bergþór Pálsson söngvari sýnir okkur hvernig það er aldrei of seint að snúa vörn í sókn og breyta yfir í heilsusamlegan lífsstíl, en hann grennti sig og kom sér í form um sextugt. Þá segir Regína Guðlaugsdóttir fyrrverandi íþróttakennari sem er 91 árs okkur frá því hvernig hreyfing og jákvæðni heldur henni ungri.

9409
11:51

Vinsælt í flokknum Ísland í dag