Undirbúningur verkfalls hjúkrunarfræðinga á lokastigi

Samningafundi í kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins lauk á fimmta tímanum í dag án niðurstöðu. Nýr fundur hefur verið boðaður í deilunni og hefst hann klukkan hálf 10 í fyrramálið. Útlit er fyrir að verkfall hjúkrunarfræðinga hefjist eftir rúma tvo sólarhringa. Formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir undirbúning verkfalls á lokastigi.

89
01:51

Vinsælt í flokknum Fréttir