Hver drap Spacestation?
Reykvíska hljómsveitin Spacestation kíkir í heimsókn í tilefni af útgáfu annarrar plötu sinnar, Who Killed Spacestation, sem kemur út á fimmtudaginn. Við heyrum einnig lög af nýrri plötu Teits Magnússonar og nýtt efni frá Bassvictim, Andy Shauf, Bryndísi, Brynju og mörgum fleiri. Straumur með Óla Dóra hefst á slaginu 22:00 á X-inu 977.