„Ekkert annað en kraftaverk að hann hafi sloppið svona vel“

Faðir tveggja ára drengs sem slasaðist, þegar bíll rann á fleygiferð niður brekku og skall af þunga á rólu sem hann lék sér í, segir kraftaverk að ekki hafi farið verr. Hann biðlar til almennings að dreifa ekki myndbandi af slysinu á samfélagsmiðlum. Það væri hræðilegt ef börnin sín sæu það. Nóg sé áfallið fyrir fjölskylduna og bílstjórann sem átti bílinn.

10913
10:47

Vinsælt í flokknum Fréttir