Skoða fleiri mál vegna mögulegra mistaka Krabbameinsfélagsins
Lögmaður konunnar sem ætlar í skaðabótamál við Krabbameinsfélagið vegna mistaka við sýnatöku segist hafa fengið fjölda fyrirspurna frá öðrum konum eða aðstandendum þeirra sem vilja athuga rétt sinn vegna mögulegra mistaka. Í skoðun er að taka tvö mál áfram sem eru sambærileg máli umbjóðanda hans.