Í gæsluvarðhald grunaður um að myrða nágranna sinn
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í rúmlega þriggja vikna gæsluvarðhald, grunaður um að hafa orðið nágranna sínum að bana í gær. Lögregla hafði fyrr um daginn verið kölluð til vegna hegðunar mannsins en ekki fjarlægt hann.