Býst ekki við að mótmælendur hlekki sig við jarðýtur í Teigsskógi

Vegagerðin hefur formlega boðið út vegagerð um Teigsskóg og á vegurinn að vera tilbúinn í október á næsta ári. Sigurþór Guðmundsson, verkefnisstjóri Vegagerðarinnar, býst ekki við að mótmælendur hlekki sig við jarðýtur enda sé búið að fara vel yfir málið og verkið verði unnið í nánu samráði við Náttúrustofu Vestfjarða.

90
01:24

Vinsælt í flokknum Fréttir