Sandkorn - 2. þáttur: Brostu bara og haltu partí

Annar þáttur. Baldvin Z leikstjóri og Tómas Valgeirsson bíófíkill grandskoða sjónvarpsseríuna Svörtu sanda. Í öðrum þætti eru rauðsíldarpælingar teknar á næsta stig á meðan andrúmsloftið á Glerársandi kraumar enn fremur með partíhaldi í nánd. Baksögur fara hægt og bítandi að skýrast en þó eru merki um að aðalsöguþráðurinn eigi enn eftir að skýrast. Tómas og Baldvin velta fyrir sér partísenur, svokallað „exposition“ í handritsgerð og gildrur slíkra reglna. Einnig bregða fyrir umræður um óséðar tæknibrellur, litamótíf, gegnumgangandi þemu og fleira sem gæti eða gæti ekki reynst mikilvægara eftir því sem lengra á líður.

1356
44:57

Vinsælt í flokknum Sandkorn