Spáð því að vaxtalækkun frestist fram á vorið

Nýlegt verðbólguskot má fyrst og fremst rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og þjónustu um áramótin. Þetta kom fram við kynningu á ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands, sem ákvað að halda vöxtum óbreyttum fram í miðjan mars. Verðbólga mælist nú 5,2 prósent og hefur ekki verið meiri í rúmt ár. Talið er að verðbólga hjaðni á næstu mánuðum og verði fimm prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er þó meira en gert var ráð fyrir í nóvember. Greiningardeildir hafa spáð því að vaxtalækkun frestist fram á vorið, af þeim sökum. Þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu ræða málið í beinni.

31
08:02

Vinsælt í flokknum Fréttir