Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 28. september 2026 14:00 Um helgina var nýr spurningaþáttur RÚV, Landsleikarnir, frumsýndur í beinni útsendingu á laugardagskvöldi. Þar etja sveitarfélög víðs vegar um landið kappi og slíkur þáttur hefur augljóslega burði til að skapa stemningu, samstöðu og heilbrigða keppni meðal landsmanna. En einn hópur sat að stórum hluta hjá. Enginn texti fylgdi þættinum. Ekki í beinu útsendingunni. Ekki í endursýningu daginn eftir. Og ekki heldur í Sarpinum. (athugað sérstaklega 28.09.26 kl 12:15) Þetta olli skiljanlegum vonbrigðum meðal heyrnarlausra og heyrnarskertra. Það vakti líka athygli mína að í athugasemdum áhorfenda kom fram að fleirum þótti erfitt að heyra hvað spyrjendur og keppendur sögðu. Hljóðið virðist því ekki einu sinni fullnægjandi fyrir alla heyrandi áhorfendur. Þarna hefði textun hjálpað miklu fleirum en aðeins heyrnarlausum og heyrnarskertum. Hvað segja skyldur RÚV? RÚV er fjölmiðill í almannaþágu og starfsemi þess er að verulegu leyti fjármögnuð af opinberu fé. RÚV starfar jafnframt samkvæmt þjónustusamningi við ríkið þar sem sérstök áhersla er lögð á aðgengi. Í gildandi þjónustusamningi RÚV er meðal annars fjallað sérstaklega um aðgengi heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þar kemur fram að íslensku sjónvarpsefni sem tekið er upp fyrir fram skulu fylgja skjátextar og að unnið skuli að því að bjóða upp á texta með öllu tali á vef. Lög um Ríkisútvarpið kveða einnig á um að heyrnarskertum skuli veittur aðgangur að fjölmiðlaþjónustu RÚV, meðal annars með textun. Því vaknar eðlilega spurning: Hvernig samræmist það þessum skyldum að stór íslenskur dagskrárliður sé sýndur í beinni, endursýndur og settur í Sarpinn án textunar? Aðgengi má ekki vera krókaleið Það er líka annað sem þarf að ræða. Leiðirnar til að nálgast texta hjá RÚV eru nú þegar mismunandi eftir því hvernig fólk horfir á sjónvarpið. Sumir þurfa að velja sérstaka textarás, til dæmis rás 888. Aðrir horfa í gegnum RÚV-appið og þurfa þar að virkja texta sérstaklega í valmynd. Hjá dreifingaraðilum hefur aðgengi að texta einnig verið misjafnt. Fyrir fólk sem þekkir kerfið vel kann þetta að vera einfalt. Fyrir marga aðra er þetta óþarflega flókið. Áhorfandinn á ekki að þurfa að vita hvaða rás, hvaða app, hvaða valmynd eða hvaða dreifingaraðila þarf til þess að fá aðgang að töluðu máli í dagskrá RÚV. Textun á að vera einföld, stöðug og fyrirsjáanleg. Í tilfelli Landsleiksins var vandinn enn skýrari: textamöguleikinn var einfaldlega ekki til staðar. Landsleikur fyrir hverja? Þegar RÚV framleiðir stóran laugardagsþátt sem ber heitið Landsleikurinn og byggir á þátttöku sveitarfélaga alls landsins, þá hlýtur markmiðið að vera að ná til landsmanna sem víðast. Þá ætti aðgengi ekki að vera aukaatriði sem leyst er síðar. Það ætti að vera hluti af framleiðslunni frá upphafi. Ef þátturinn heitir Landsleikarnir er því kannski rétt að spyrja: Eru allir landsmenn með í leiknum? Höfundur er fyrrverandi þingmaður og hefur verið heyrnarlaus frá átta ára aldri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Táknmál Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun