Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar 26. september 2026 12:01 Kynferðisofbeldi í nánum samböndum – IPSV, intimate partner sexual violence – er alvarleg tegund ofbeldis sem hlýtur ekki þá umræðu sem þörf er á. Ástæðan er ekki skortur á gögnum heldur skortur á vilja til að horfast í augu við óþægilegan veruleika. Við höldum fast í hugmyndina um réttlátan heim þar sem þeir sem okkur þykir vænt um eru í eðli sínu góðir og ófærir um voðaverk. Þegar einhver sem segist elska okkur meiðir okkur og skaðar, hrynur þessi heimsmynd, bæði hjá þolendum og þeim sem telja hjúskapinn vera öruggan griðarstað sem hafinn er yfir alvarlega misbresti. Þegar raunhyggjan nær loksins valdi á óstýrlátri óskhyggjunni sjáum við fólk eins og það er, ekki eins og við viljum að það sé. Það getur verið óþægilegt, sárt og krefjandi, og þess vegna er okkur gjarnt að forðast umræðuna um ofbeldi. Kynferðisofbeldi í nánum samböndum er einmitt slíkt umræðuefni því það kallar á að við viðurkennum að kynferðisofbeldi getur átt sér stað þar sem öryggi er almennt talið ríkja. IPSV er skilgreint sem kynferðislegt ofbeldi af hálfu núverandi eða fyrrverandi maka, óháð kyni þolanda. Það nær yfir þvingað kynlíf, hótanir og gaslýsingu í kynferðislegu samhengi, niðurlægingu og fílustjórnun í kynferðislegu samhengi, kynferðislegar athafnir í óþökk þolanda og stafrænt kynferðislegt ofbeldi. IPSV er ekki „erfiðleikar í sambandi, misskilningur eða ólík kynhvöt“, þetta er valdbeiting sem brýtur gegn kynferðislegu sjálfræði einstaklingsins og á sér oft stað samhliða öðru ofbeldi. Stígamót hafa í áratugi safnað gögnum um kynferðisofbeldi á Íslandi. Á árunum 2020 til 2025 voru 17–24% gerenda annað hvort makar eða fyrrverandi makar brotaþola sinna. Þegar kynferðisofbeldi á sér stað innan sambands eru afleiðingarnar oft alvarlegar og lífsgæðaskerðandi. Rannsóknir sýna að IPSV tengist alvarlegum afleiðingum sem geta skert bæði líkamlega og andlega heilsu, þar á meðal: Þolendur eru útsettari fyrir flókinni áfallastreitu (C-PTSD): Rannsóknir sýna að þolendur IPSV eru líklegri til að þróa með sér flókna áfallastreitu, þar sem áfallið er endurtekið og gerandinn er maki sem þolandinn treysti. Þetta getur gert bataferlið bæði flókið og tímafrekt. Frysting/Stjarfi (tonic immobility) er algengari. Frysting er lífeðlisfræðilegt viðbragð taugakerfisins sem getur komið fram við mikla ógn eða yfirþyrmandi aðstæður, líkt og þegar öryggi þolanda er ógnað við kynferðisofbeldi af hálfu maka. Þolendur upplifa eins og þeir frjósi. Í slíku ástandi lamast líkaminn tímabundið, hreyfingar stöðvast og röddin þagnar, jafnvel þótt einstaklingurinn vilji bregðast við. Þetta er ósjálfrátt viðbragð frá varnarkerfi líkamans. Úrvinnsla upplýsinga í aðstæðum sem þessum verður taugakerfinu ofviða og hugræn aftenging getur fylgt í kjölfarið. Fólk verður skugginn af sjálfum sér. Meiri líkamleg einkenni: IPSV tengist hærri tíðni langvinnra verkja, gigtareinkenna, svefntruflana og meltingarvandamála. Líkaminn bregst við endurteknum áföllum innan sambandsins með langvarandi streituviðbrögðum. Korisól byrjar að seyta í of miklu magni of lengi og hefur í för með sér veruleg áhrif á margskonar virkni í líkamanum. Erfiðleikar í nánd og kynlífi: Þolendur IPSV eiga oftar í langvinnum erfiðleikum með kynlíf, nánd, traust og sambönd. Þegar IPSV á sér stað í nánu sambandi getur kynferðisleg sjálfsmynd og heilbrigð tengslamyndun orðið fyrir alvarlegum skaða. Félagsleg einangrun og skömm: Þolendur IPSV leita sér síðar hjálpar en aðrir þolendur, oft vegna skammar, skaðlegrar og kynjaðrar félagsmótunar og vegna þess að gerandinn gæti hafað einangrað þá og gaslýst til lengri tíma. Þetta getur lengt bataferlið og aukið líkur á langvinnum geðrænum vandamálum. Hærri áhætta á endurteknum brotum og lífshættulegu ofbeldi: IPSV er sterkur áhættuþáttur fyrir kyrkingartök, endurtekið ofbeldi og jafnvel morð af hálfu maka. Þessi áhætta er mun hærri en í tilvikum þar sem gerandi er ókunnugur. Að setja orð á óþægilega hluti. Við höfum sem samfélag sterka tilhneigingu til að verja „heiður hússins“, mýtuna um að ofbeldi eigi sér ekki stað innan náinna sambanda. En það er einmitt þar sem stór hluti kynferðisofbeldis á sér stað. Þolendur þurfa að vita að það sem þeir upplifa er raunverulegt, alvarlegt, óásættanlegt og að hjálp er hægt að fá. Höfundur er ráðgjafi hjá Sálfræðingunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun