Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar 4. september 2026 07:32 Tveir nágrannar kaupa sambærilegar íbúðir. Þeir taka jafn há lán með sama veðhlutfalli og sambærilegri áhættu. Annar tekur lánið hjá banka, hinn hjá lífeyrissjóði. Í augum nágrannanna líta lánin eins út. Gagnvart skattkerfinu er munurinn hins vegar verulegur. Ólíkt lífeyrissjóðnum greiðir bankinn sérstakan skatt sem leggst á fjármögnun lánsins. Bankar bera jafnframt fjársýsluskatt á laun og sérstakan fjársýsluskatt á hagnað umfram tiltekin mörk. Að auki þarf bankinn að binda eigið fé vegna lánsins samkvæmt evrópsku regluverki. Áhrif þessara álaga geta numið 50-100.000 krónum á ári fyrir meðalhátt húsnæðislán og munar marga svo sannarlega um það. Það er ekkert óeðlilegt að lífeyrissjóðir láni sjóðfélögum sínum. Þeir gera það sem þeim ber að gera: ávaxta fé sjóðfélaga sinna. Það sem stingur mest í stúf er að skattbyrði sömu þjónustu ráðist af því hver veitir hana, en ekki af eðli þjónustunnar sjálfrar. Þetta er sambærilegt við að sérstakur skattur sé lagður á mjólkurfernu í Nettó en ekki í Bónus. Skekkjan óbreytt í eðli sínu Á þetta hefur verið bent áður. Í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið, sem starfshópur á vegum stjórnvalda skilaði árið 2018, er fjallað sérstaklega um áhrif skattheimtu á fyrirkomulag húsnæðislána. Þar er komist að þeirri niðurstöðu að sértækir bankaskattar leggist frekar á þá efnaminni, sem eingöngu hafa aðgang að íbúðalánum viðskiptabankanna og að brýnt sé að leiðrétta þá kerfisvillu. Hvítbókin benti einnig á að þessir skattar væru margfalt hærri hér á landi en í nágrannalöndunum og hluti af svokölluðu Íslandsálagi á vexti. Átta árum síðar er staðan óbreytt. Ný greining KPMG sýnir að sértækir skattar íslenskra banka eru fimmfalt hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu. Skattur með ákveðinn tilgang Í fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031 eru boðaðar auknar álögur á fjármálafyrirtæki og hefur verið nefnt opinberlega að sækja eigi sex milljarða króna til viðbótar á ári. Hvernig þeirra verður aflað liggur ekki fyrir. Það gæti orðið með hækkun bankaskattsins, öðrum sköttum á fjármálafyrirtæki eða nýjum skattstofni. Þá hefur tekjuöflunin ekki verið rökstudd með vísan til fjármálastöðugleika, sem er þó sá grundvöllur sem sértæk skattlagning fjármálafyrirtækja hefur hingað til hvílt á. Það vekur spurningar um hvort álögurnar eigi yfirhöfuð að rúmast innan gildandi laga. Markmið laganna frá 2010 eru tvíþætt, annars vegar að mæta kostnaði ríkissjóðs vegna hrunsins og hins vegar að draga úr áhættusækni fjármálafyrirtækja. Það ákvæði stendur enn óbreytt. Gjaldhlutfallið hefur aftur á móti sveiflast. Það var 0,041% í upphafi, fór í 0,376% eftir hækkun haustið 2013 vegna leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána og stendur nú í 0,145%. Það er margfalt hærra en í upphafi, þótt tilefnið frá 2013 sé löngu liðið. Það er ekki ámælisvert í sjálfu sér; löggjafinn fer með skattlagningarvaldið og ríkissjóður þarf tekjur. En það kallar á að samræmi sé milli yfirlýstra markmiða skattsins og þeirrar skattheimtu sem raunverulega á sér stað. Síðara markmiðinu, að draga úr áhættusækni, er nú einkum náð með öðrum og áhættunæmari tækjum á borð við eiginfjárkröfur, eiginfjárauka og lausafjárkröfur. Flatur skattur á heildarskuldir gerir það ekki. Skattfleygurinn Vaxtamunur milli útlána og fjármögnunar stendur meðal annars undir rekstri, útlánatapi og eiginfjárbindingu fjármálafyrirtækja. Skattar sem leggjast sérstaklega á fjármögnun banka mynda þar til viðbótar svokallaðan skattfleyg. Skattfleygurinn ræðst hins vegar ekki af eðli lánsins eða þeirri áhættu sem því fylgir, heldur af því hver veitir lánið. Sambærilegt íbúðalán ber þannig ólíka skattbyrði eftir því hvort lánveitandinn er banki eða lífeyrissjóður. Þessi skekkja væri síður áleitin ef allir lántakar stæðu jafnfætis við val á lánveitanda. Greining Seðlabanka Íslands sýnir á hinn bóginn að lántakendur hjá lífeyrissjóðum hafa að jafnaði hærri ráðstöfunartekjur en lántakendur hjá viðskiptabönkum. Skuldsettari heimili, tekjulægri hópar og kaupendur fyrstu fasteignar hafa síður sömu möguleika á lántöku hjá lífeyrissjóðum. Skekkjan er því ekki aðeins á milli lánveitenda. Hún getur einnig birst á milli ólíkra hópa lántaka. Þeir sem hafa val um lánveitanda geta staðið utan skattfleygsins. Þeir sem hafa það ekki standa undir honum. Krafan um hlutleysi Kjarni málsins er ekki hvort leggja eigi sambærilegar álögur á lífeyrissjóði. Hann snýst um að skattbyrðin endurspegli þau markmið sem skattlagningunni er ætlað að ná og raski ekki samkeppni milli aðila sem veita sambærilega þjónustu. Sú krafa á við óháð því hvaða leið verður valin. Hvort sem álögurnar verða lagðar á innan gildandi laga, með breytingum á þeim eða á nýjum grunni, þarf að liggja fyrir hvaða markmiðum þær eiga að þjóna. Það skiptir máli hversu mikið er skattlagt, en ekki síður hvernig. Ef tvö sambærileg lán með sambærilega áhættu bera ólíka skattbyrði eftir því hver veitir þau og lántökum er þannig mismunað, þarf að vera hægt að skýra hvers vegna. Nágrannarnir tveir eiga að minnsta kosti rétt á þeirri skýringu. Hún ætti að liggja fyrir áður en álögurnar eru auknar. Höfundur er bankastjóri Íslandsbanka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lánamál Mest lesið Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Sjá meira
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun