Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar 1. september 2026 17:01 Anna Margrét Bjarnadóttir skrifaði hér á Vísi grein undir fyrirsögninni „Ekki leggja þjóðinni orð í munn“. Ég er sammála henni. Þjóðin kaus ekki 29. Ágúst um formlega afturköllun aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu. Það stóð ekki á kjörseðlinum. Ég sagði það raunar sjálfur í grein minni hér á Vísi í gær. 118.040 kjósendur veittu Alþingi ekki sérstakt þjóðaratkvæðisumboð til að afturkalla umsóknina. Þjóðin svaraði þeirri spurningu sem hún var spurð: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Svarið var nei… Þar hefur Anna rétt fyrir sér. En þá verðum við að beita sömu reglu í báðar áttir. Þjóðin kaus heldur ekki að halda umsókninni frá 2009 til haga sem mögulegri brú inn í framtíðarviðræður. Það stóð ekki heldur á kjörseðlinum. Hvorugt stóð á kjörseðlinum Nei þýðir ekki: „Afturkallið umsóknina.“ En Nei þýðir heldur ekki: „Geymið umsóknina frá 2009, svona til öryggis, ef einhver vill nota hana síðar.“ Hvorugt stóð á kjörseðlinum. Þess vegna finnst mér eitthvað skakkt við að tala um afturköllun sem nýja pólitíska ákvörðun, en meðhöndla varðveislu gömlu umsóknarinnar eins og hún sé hlutlaus sjálfgefin staða. Að afturkalla er ákvörðun. Að halda henni er líka ákvörðun. Spurningin sem Alþingi stendur nú frammi fyrir er því ekki hvað þjóðin kaus um afturköllun. Hún kaus ekki um hana. Spurningin er hvað sé eðlilegt að Alþingi geri við umsóknina frá 2009 eftir að þjóðin hefur hafnað því að viðræðurnar verði teknar upp að nýju. Umsókn sem er hvorki alveg lifandi né alveg dauð Hér þarf líka að vera nákvæmur. ESB lítur ekki á Ísland sem umsóknarríki í dag. Ísland óskaði árið 2015 eftir því að vera ekki lengur talið umsóknarríki og aðildarferlið hefur verið óvirkt árum saman. En umsóknin frá 2009 var engu að síður aldrei formlega afturkölluð. Evrópuþingið lýsir stöðunni einmitt þannig… Ríkisstjórnin afturkallaði umsóknina ekki formlega, þótt ESB líti ekki lengur á Ísland sem umsóknarríki. Þarna liggur tvíræðnin. Og þess vegna finnst mér afturköllun ekki vera einhver dramatísk yfirlýsing um að Ísland hafi snúið baki við Evrópu um alla framtíð. Hún er miklu hversdagslegri. Við erum einfaldlega að ganga formlega frá því sem hefur verið lagt til hliðar í reynd. Eða, á mannamáli: Að taka til. Relationship status frá 2009 Ég notaði þessa líkingu áður og hún virðist neita að deyja. Ísland sótti um árið 2009. Viðræðurnar voru settar á ís. Árið 2015 sögðum við ESB að við ætluðum ekki að halda áfram og vildum ekki lengur teljast umsóknarríki. Samt rífumst við enn árið 2026 um hvort umsóknin sjálf sé formlega til. Þetta er svolítið eins og samband sem lauk fyrir mörgum árum, báðir hættir að hittast og annar búinn að tilkynna að sambandið sé búið… en relationship status á Facebook fær samt ekki að fara. Svo spurðum við þjóðina hvort hún vildi byrja aftur. Hún sagði nei. Kannski er bara komið að því að breyta statusnum. Ekki af reiði. Bara af því að sambandið er ekki í gangi. En hvað með dyrnar? Anna endar grein sína á góðri mynd. Hún segir að þjóðin hafi ákveðið að ganga ekki inn um dyrnar núna en ekki hvort hún vildi „læsa þeim og henda lyklinum“. Þarna skilja leiðir okkar. Því afturköllun umsóknarinnar frá 2009 hendir ekki lyklinum. 49. gr. Sáttmálans um Evrópusambandið stendur áfram. Evrópskt ríki sem uppfyllir skilyrðin getur sótt um aðild. Formleg afturköllun gömlu umsóknarinnar tekur þann möguleika ekki frá Íslandi. Framtíðarþing getur tekið nýja ákvörðun. Framtíðarríkisstjórn getur viljað sækja aftur um. Framtíðarkjósendur geta tekið allt aðra afstöðu en við gerðum. Dyrnar eru því ekki læstar. Og lykillinn hefur ekki horfið. Ef dyrnar eru áfram til staðar samkvæmt 49. Gr., hvers vegna þurfum við þá að geyma umsókn frá 2009 undir blómapottinum eins og hún sé eini lykill framtíðarinnar? Framtíðin þarf ekki umsóknina okkar frá 2009 til að eiga val. Hún þarf frelsi til að taka sína eigin ákvörðun. Að ganga frá fortíðinni er ekki að loka framtíðinni Gamla umsóknin bindur auðvitað ekkert framtíðarþing lagalega. Þegar ég tala um að við eigum ekki að veðsetja framtíðina á ég ekki við það beint. Ég á við hugmyndina að við eigum sérstaklega að varðveita pólitískt skref sem Alþingi tók árið 2009 vegna þess að fólk árið 2036 eða 2046 gæti viljað nýta sér það. Það liggur við að það sé að veðsetja framtíðina með gömlu umboði í stað þess að treysta henni fyrir nýju. Framtíðin getur talað fyrir sig sjálf. Við erum ekkert að loka framtíðinni. Við erum bara að ganga frá fortíðinni. Meirihlutinn ræður – minnihlutinn hverfur ekki Anna bendir réttilega á að 105.339 Íslendingar kusu já. Það skiptir máli. Þau atkvæði hurfu ekki við talninguna og fólkið sem greiddi þau missti ekki rétt sinn til að tala fyrir ESB-aðild. En þannig virkar lýðræði. Minnihlutinn missir ekki röddina þegar hann tapar. Hann tapar ákvörðuninni. Og ef afstaða þjóðarinnar breytist síðar getur nýr meirihluti tekið nýja ákvörðun. Það er einmitt ástæðan fyrir því að við þurfum ekki að geyma umsókn frá 2009 fyrir hann. „Nei til að njóta“ Fyrir kosningar heyrðum við mikið um „Já til að sjá“. Það var ágætt slagorð. En „Já til að sjá“ tapaði. Kannski eigum við bara að leyfa okkur smá „Nei til að njóta“: Njóta þess að þjóðin tók ákvörðun, virða hana og ganga síðan snyrtilega frá. Ekki leggja framtíðinni orð í munn Anna hefur rétt fyrir sér um meginregluna: Ekki leggja þjóðinni orð í munn. Ekki segja að þjóðin hafi kosið afturköllun þegar hún var ekki spurð um hana. En beitum þeirri reglu í báðar áttir. Ekki segja heldur að þjóðin hafi kosið að varðveita umsóknina. Og ekki halda umsókn frá 2009 til haga fyrir framtíðina á þeirri forsendu að hún gæti viljað nota hana. Ef hún vill fara þessa leið síðar getur hún gert það. Hún þarf ekki okkar leyfi né forræðishyggju. Hún þarf ekki umsóknina okkar. Og hún þarf ekki lykil undir blómapottinum. Framtíðin þarf ekki umsóknina okkar frá 2009 til að eiga val. Hún þarf frelsi til að taka sína eigin ákvörðun. Það er ekki að læsa dyrunum. Það er að treysta næstu kynslóð fyrir lyklinum. Höfundur er iðnaðarmaður og guðfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar